Beint í efni

32. fundur

03.09.2025
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

32. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

03.09.2025

Kl. 15:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Eva Björg F Torfadóttir - varamaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Hjördís Guðný Guðmundsdóttir - aðalmaður
  • Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Anna María Skúladóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2508042

01

Ársskýrslur grunnskóla 2024-2025

Við upphaf fundarins óskaði formaður skólanefndar eftir því að bæta við dagskrár lið nr. 5. Skólanefnd samþykkti breytta dagskrá.

Lagðar voru fram ársskýrslur grunnskóla skólaársins 2024-2025. Skólanefnd færir þakkir til skólafólks fyrir faglegar og vel unnar ársskýrslur. Þær bera vott um metnaðarfullt og gott skólastarf auk þess sem þær eru mikilvæg heimild og tæki til stefnumótunar í skólastarfinu. Skólanefnd fagnar samræmingu efnistaka í ársskýrslum en telur að skoða mætti frekari samræmingar. Skólanefnd vísar málinu til fræðslu- og frístundasvið til frekari skoðunar með skólastjórnendum. .

Málsnúmer 2508347

02

Skólabyrjun 2025-2026. Fjöldi nemenda og fleiri upplýsingar

Grunnskólafulltrúi fór yfir skólabyrjun 2025-2026. Á ár hófu 2630 nemendur nám í grunnskólum Garðabæjar, þar af 258 nemendur í 1. bekk, 305 nemendur munu ljúka grunnskóla vorið 2026. Farið var yfir áherslu í skólastarfi í Garðabæ 2025 - 2026.

Málsnúmer 2508349

03

Reglur um símanotkun í grunnskólum Garðabæjar

Lögð var fyrir samantekt um reglur sem gilda um símanotkun í grunnskólum Garðabæjar. Símanotkun er óheimil í kennslustundum í grunnskólum bæjarins. Undantekningar á þeim reglum er þegar nemendur þurfa að nota tækin í verkefnum í unglingadeildum og þá aðeins með leyfi kennara. Fræðslu- og frístundasviði er falið að skoða ávinning þess að hafa samræmdar reglur um símanotkun í grunnskólum í Garðabæ.

Málsnúmer 2506001

04

Sértæk úrræði í grunnskólum

Lögð var fram til kynningar viljayfirlýsing á milli Garðabæjar og Jónsvegs ehf. um vilja til að undirbúa stofnun skóla, sem er sérhæfður grunnskóli fyrir einhverf börn.

Málsnúmer 2509098

05

Námsmat í grunnskólum

Skólanefnd leggur til að allir grunnskólar í Garðabæ hvort heldur þeir sem eru bæjarreknir eða sjálfstætt starfandi, leggi fyrir Matsferil Menntamálastofnunar (MMS) í 4.-10.bekk í íslensku og í stærðfræði. Markmið tillögunnar er að tryggja samræmda og markvissa eftirfylgni með námsframvindu nemenda og styðja við skólaþróun og einstaklingsmiðað nám. Markmið Matsferils er m.a. að stuðla að sífelldri endurskoðun og umbótum í skólastarfi og efla gæði náms. Þá leggur nefndin áherslu á að námsmat við lok hvers skólastigs þ.e., í 4., 7., og 10. bekk, verði samræmt í grunnskólum Garðabæjar, þannig að sömu námsmarkmið og matsgildi verði á bak við námsmat nemenda. Lagt er til að byrjað verði á íslensku og stærðfræði og önnur fög innleidd í áföngum á næstu árum. Skólanefnd vísar málinu til fræðslu- og frístundasviðs til frekari vinnslu.

Málsnúmer 2508348

06

Fundir skólanefndar 2025-2026, helstu áherslur.

Formaður skólanefndar fór yfir fyrirhugaða fundi skólanefndar skólaárið 2025-2026. Farið var yfir hlutverk skólanefndar og helstu áherslur nefndarinnar á skólaárinu.