Námsmat í grunnskólum
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
32. fundur
Skólanefnd leggur til að allir grunnskólar í Garðabæ hvort heldur þeir sem eru bæjarreknir eða sjálfstætt starfandi, leggi fyrir Matsferil Menntamálastofnunar (MMS) í 4.-10.bekk í íslensku og í stærðfræði. Markmið tillögunnar er að tryggja samræmda og markvissa eftirfylgni með námsframvindu nemenda og styðja við skólaþróun og einstaklingsmiðað nám. Markmið Matsferils er m.a. að stuðla að sífelldri endurskoðun og umbótum í skólastarfi og efla gæði náms. Þá leggur nefndin áherslu á að námsmat við lok hvers skólastigs þ.e., í 4., 7., og 10. bekk, verði samræmt í grunnskólum Garðabæjar, þannig að sömu námsmarkmið og matsgildi verði á bak við námsmat nemenda. Lagt er til að byrjað verði á íslensku og stærðfræði og önnur fög innleidd í áföngum á næstu árum. Skólanefnd vísar málinu til fræðslu- og frístundasviðs til frekari vinnslu.