30. fundur
30. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.04.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - formaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Maria Eugenia Aleman Henriquez - varamaður
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
- Jónína Guðrún Brynjólfsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Agnes Ólöf Pétursdóttir - fulltrúi starfsmanna
- Árdís Ethel Hrafnsdóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Hanna Halldóra Leifsdóttir
Dagskrá
01
Beiðni um tilfærslu á starfsdegi
Beiðni frá leikskólanum Sjálandi um tilfærslu á starfsdegi.
Leikskólanefnd tók fyrir beiðni um flutning á starfsdegi fyrir leikskólann Sjáland og var hún samþykkt.
02
Beiðni um tilfærslu á starfsdegi
Beiðni um tilfærslu á starfsdegi fyrir Holtakot
Leikskólanefnd tók fyrir beiðni um flutning á starfsdegi fyrir Heilsuleikskólann Holtakot og var hún samþykkt.
03
Skóladagatal leik- og grunnskóla 2025-2026
Leikskóladagatal 2025-2026 tillaga að breytingu.
Leikskóladagatal fyrir skólaárið 2025-2026 var aftur lagt til samþykkar. Lagðar voru til breytingar um að færa starfsdag 31. október til 7. nóvember. Leikskólanefnd samþykkti þessar breytingar.
04
Útboð skólamáltíða 2025 í grunn- og leikskólum
Útboð skólamáltíða 2025- kynning
Guðbjörg Linda Udengard sviðsstjóri Fræðslu- og frístundasviðs kynnti fyrirhugað útboð á skólamat fyrir leik- og grunnskóla í Garðabæ.
05
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Umsókn í þróunarsjóð leikskóla. Agastjórnun í krefjandi umhverfi.
Leikskólanefnd þakkar fyrir góða umsókn og kynningu og samþykkir að veita verkefninu Agastjórnun í krefjandi umhverfi, styrk úr Þróunarsjóði leikskóla að upphæð 1.005.000 kr.
06
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Umsókn í þróunarsjóð leikskóla. Samtal um foreldrafærni.
Margar góðar umsóknir bárust í Þróunarsjóð og óskir um fjármagn hærra en til er í sjóðinum. Ekki var því hægt að úthluta fjármagni til allra verkefna. Leikskólanefnd er ánægð með fjölgun umsókna og hvetur til þess, að verkefni sem ekki fá fjármagn að þessu sinni verði aftur send inn að ári. Umsóknin Samtal um foreldrafærni, fær ekki styrk að þessu sinni.
07
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Umsókn í þróunarsjóð leikskóla. Stærðfræði, listir og sköpun.
Margar góðar umsóknir bárust í Þróunarsjóð og óskir um fjármagn hærra en til er í sjóðinum. Ekki var því hægt að úthluta fjármagni til allra verkefna. Leikskólanefnd er ánægð með fjölgun verkefna og hvetur til þess, að verkefni sem ekki fá fjármagn að þessu sinni verði aftur send inn að ári. Umsóknin Stærðfræði, listir og sköpun fær ekki styrk að þessu sinni.
08
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Umsókn í þróunarsjóð leikskóla. Jóga og samkennd.
Leikskólanefnd þakkar fyrir góða umsókn og kynningu og samþykkir að veita verkefninu Jóga og samkennd, styrk úr Þróunarsjóði leikskóla að upphæð 1.122.000 kr.
09
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Umsókn í þróunarsjóð leikskóla. Markviss málörvun með borðspilum.
Leikskólanefnd þakkar fyrir góða umsókn og samþykkir að veita verkefninu Markviss málörvun með borðspilum, styrk úr Þróunarsjóði leikskóla að upphæð 487.900.- krónur.
10
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Umsókn í þróunarsjóð leikskóla. TRAS- Verkfærakista, hjálpartæki við útfyllingu listans.
Leikskólanefnd þakkar fyrir góða umsókn og kynningu og samþykkir að veita verkefninu TRAS- verkfærakista, styrk úr Þróunarsjóði leikskóla að upphæð 1.635.500 kr.
11
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Umsókn í þróunarsjóð leikskóla. ART á leikskólastigi Urriðaholtsskóla.
Margar góðar umsóknir bárust í Þróunarsjóð og óskir um fjármagn hærra en til er í sjóðinum. Ekki var því hægt að úthluta fjármagni til allra verkefna. Leikskólanefnd er ánægð með fjölgun umsókna og hvetur til þess, að verkefni sem ekki fá fjármagn að þessu sinni verði aftur send inn að ári. Umsóknin ART á leikskólastigi Urriðaholtsskóla, fær ekki styrk að þessu sinni.
12
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Umsókn í þróunarsjóð leikskóla. Skógarhús og útsvæði fyrir útikennslu.
Leikskólanefnd sá sér ekki fært að taka umsóknina til umfjöllunar þar sem ekki liggur fyrir samþykki fyrir skógarhúsi og útikennslusvæði við Urriðavatn.
13
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Leiðsögn og málörvun
Leikskólanefnd þakkar fyrir góða umsókn og samþykkir að veita verkefninu Leiðsögn og málörvun, styrk úr Þróunarsjóði leikskóla að upphæð 1.200.000.- krónur.
14
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Umsókn í þróunarsjóð leikskóla. Drullueldhús- sjálfsprottin leikur í náttúru.
Leikskólanefnd þakkar fyrir góða umsókn og kynningu og samþykkir að veita verkefninu Drullueldhús- sjálfsprottin leikur í náttúru, styrk úr Þróunarsjóði leikskóla að upphæð 692.000.- krónur.
15
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Umsókn í þróunarsjóð leikskóla. Fjölhæfnistundir- lykill að gleði.
Leikskólanefnd þakkar fyrir góða umsókn og kynningu og samþykkir að veita verkefninu Fjölhæfnistundir- lykill að gleði, styrk úr Þróunarsjóði leikskóla að upphæð 1.053.000.- krónur.
16
Þróunarsjóður leikskóla - umsókn
Hæglátt leikskólastarf
Leikskólanefnd þakkar fyrir góða umsókn og samþykkir að veita verkefninu Hæglátt leikskólastarf, styrk úr Þróunarsjóði leikskóla að upphæð 1.804.600.- krónur.