Beint í efni

Arn­ar­land - Um­sjón og eft­ir­lit með fram­kvæmd­um

Eftirlitsverkið felst í því að hafa eftirlit fyrir Garðabæ og veitufyrirtæki með útboðsverkinu Arnarland – gatnagerð og lagnir.

Í auglýsingu
23.06.2026

Upplýsingar um auglýst útboð

Arnarland - Umsjón og eftirlit með framkvæmdum

Staða útboðs
Í auglýsingu
Útboð opnar
23.06.2026
Útboð lýkur
14.07.2026
Útboðskerfi NTI BidcoSkoða umfjöllun í fundargerðum

Garðabær óskar eftir tilboðum í eftirlitsverkið: Arnarland – Umsjón og eftirlit með framkvæmdum.

Eftirlitsverkið felst í því að hafa eftirlit fyrir Garðabæ og veitufyrirtæki með útboðsverkinu Arnarland – gatnagerð og lagnir. Í útboðsverkinu er um að ræða gatna- og stígagerð auk lagnavinnu vegna uppbyggingar í Arnarlandi.

Gerðar eru kröfur um að eftirlitsaðili hafi góða þekkingu og reynslu af sambærilegum verkum. Eftirlitsverkið skal unnið samkvæmt útboðs- og verklýsingu auk verksamninga og annarra fylgigagna samnings um ofangreint útboðsverk.

Áætluð verklok framkvæmdar eru 1. apríl 2027, og skal eftirlitsaðili standa að fullu við skuldbindingar sínar í samræmi við kafla 0.7 í útboðsgögnum þessum.

Útboðsgögn eru rafræn og má nálgast án endurgjalds á útboðskerfi NTI Bidco (www.ntibidco.com). Tilboð skulu hafa borist eigi síðar en 14. júlí 2026, kl. 11:00, sjá nánar í kafla 0.1.2 í útboðs- og verklýsingu. Útboðsgögn eru aðgengileg frá og með 23. júní 2026.

Tilboð verða opnuð rafrænt miðvikudaginn 14. júlí 2026 kl: 11:05.