Opnun tilboða í verkið - Eftirlit með Gatnagerð - Arnarland.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
25. (2220). fundur
Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Arnarland - Umsjón og eftirlit með framkvæmdum":
1. EFLA kr. 39.120.000 (106,1%).
2. JTV ehf., kr. 35.994.500 (97,6%).
3. VSÓ Ráðgjöf ehf., kr. 35.712.000 (96,9%).
4. Hnit Artelia hf., kr. 34.521.600 (93,6%).
5. Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar ehf., kr. 30.863.600 (83,7%).
6. Strendingur ehf., kr. 30.565.000 (82,9%).
7. Verkís hf., kr. 30.001.180 (81,4%).
8. Verkfræðistofa Reykjavíkur, kr. 26.823.680 (72,7%)
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 36.871.400. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Verkfræðistofu Reykjavíkur, að fjárhæð kr. 26.823.680 (72,7% af kostnaðarætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
02
22. (2217). fundur
Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna eftirlits með gatnagerð - Arnarland.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.