Beint í efni

22. (2217). fundur

23.06.2026
Bæjarráð Garðabæjar

22. (2217). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

23.06.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Stella Stefánsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs

Ritari

  • Ágúst Þór Guðmundsson

Dagskrá

Málsnúmer 2606432

01

Kæra Dráttarbíla Vélaleigu ehf. til Kærunefndar útboðsmála vegna útboðsins "Arnarland - Gatnagerð og veitulagnir", dags. 12. júní 2026.

Lögð fram kæra Dráttarbíla Vélaleigu ehf. til Kærunefndar útboðsmála, vegna útboðs Garðabæjar, Arnarland- gatnagerð og veitulagnir", dags. 12. júní 2026.

Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.

Málsnúmer 2606439

02

Útboð - Eftirlit með Gatnagerð - Arnarland

Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna eftirlits með gatnagerð - Arnarland.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.

Málsnúmer 2606451

03

Laun fyrir setu í nefndum og ráðum á vegum Garðabæjar.

Samþykkt um laun fyrir störf í bæjarstjórn Garðabæjar, nefndum og ráðum á vegum bæjarstjórnar lögð fram.

Bæjarstjóra er falið að gera tillögur að breytingum fyrirliggjandi samþykkta.

Málsnúmer 2606452

04

Fyrirspurn Garðbæjarlistans um umferðaröryggi

Umhverfissvið hefur hafið undirbúning að gerð nýrrar umferðaröryggisáætlunar Garðabæjar. Verkefnastjóri fyrir hönd Garðabæjar er Guðbjörg Brá Gísladóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs. Við vinnuna mun samráð haft við Vegagerðina, Samgöngustofu, Lögregluna, Strætó og skólaskrifstofu Garðabæjar. Þá skal kallað eftir ábendingum frá íbúum Garðabæjar um hvernig bæta megi umferðaröryggi í sveitarfélaginu.

Frekara fyrirkomulag við vinnu umferðaröryggisáætlunar mun lagt fyrir skipulagsnefnd, á fundi nefndarinnar þann 27. ágúst nk.

Málsnúmer 2606453

05

Tilnefning í samráðshóp vegna Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins

Bæjarráð tilnefnir Birki Guðlaugsson sem aðalmann og Björgu Fenger sem varamann í samráðshóp vegna þjónustusamnings sveitarfélaga og ríkisins við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.