Ástandsmat fráveitu – Hreinsun og myndun
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Ástandsmat fráveitu – Hreinsun og myndun
Upplýsingar um auglýst útboð
Ástandsmat fráveitu – Hreinsun og myndun
Athugið að þessu útboði er lokið
Verkið skal framkvæma í samræmi við útboðsgögn eins og þeim er lýst í grein „0.3.1 Útboðsgögn“. Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf til að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum þessum. Tilboð skal gera á meðfylgjandi tilboðsblað og sundurliða í tilboðsskrá.
Verkið er í aðalatriðum fólgið í því, að verktaki skal hreinsa og mynda fráveitulagnir til að hægt sé að leggja mat á ástand þeirra. Stofnlagnir i fráveitukerfi Garðabæjar er 150 mm og upp í 600 mm og þær sem hreinsa á og mynda í þessum áfanga eru allar úr steini. Brunnar eru yfirleitt 1000 mm en geta verið 600 mm í þvermál. Tengingar eru almennt 150 mm steinrör en geta í einstaka tilfellum verið 100 mm eða 200 mm. Niðurföll eru yfirleitt með 250 mm vídd og sandfang sem oftast rúmar um 40 lítra. Niðurföllin eru ýmist með vatnslás á frárennslislögn, oftast í skólp eða blandlögnum, eða án og er það þá yfirleitt á ofanvatnskerfinu.
Útboðsgögn eru ekki lengur aðgengileg.