Beint í efni

Hjúkr­un­ar­heim­ili í Vetr­ar­mýri, Garða­bæ - Upp­bygg­ing og út­leiga - For­val

Sveitarfélagið Garðabær óskar eftir umsóknum frá áhugasömum aðilum um þátttökurétt í lokuðu útboði vegna hönnunar, uppbyggingar og útleigu á húsnæði fyrir þjónustumiðstöð og hjúkrunarheimili í Vetrarmýri í Garðabæ.

Í auglýsingu
27.08.2026

Upplýsingar um auglýst útboð

Hjúkrunarheimili í Vetrarmýri, Garðabæ - Uppbygging og útleiga - Forval

Staða útboðs
Í auglýsingu
Útboð opnar
27.08.2026
Útboð lýkur
28.09.2026
Slóð á útboðsvefSkoða umfjöllun í fundargerðum

Leitað er að aðilum sem myndu taka að sér að hanna, byggja og leigja húsnæðið til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Garðabæjar.

Gert er ráð fyrir að byggingin verði tæplega 9.000 m2 að stærð og rúmi u.þ.b. 100 hjúkrunarrými ásamt þjónustumiðstöð fyrir dagdvöl, dagþjálfun eða aðra þjónustu sem samræmist rekstri hjúkrunarheimilis.

Forvalsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds, á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með fimmtudeginum 27. ágúst kl. 14:00.

Forvalsumsóknum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en mánudaginn 28. september 2026 kl. 14:00