Beint í efni

Klaustr­ið í Garða­bæ Sam­starfs­verk­efni um end­ur­bæt­ur við­hald og rekst­ur

Garðabær leitar að áhugasömum og hæfum samstarfsaðila til að taka þátt í samstarfsverkefni um endurbætur, viðhald og rekstur á húsnæði Garðabæjar við Holtsbúð 87 í Garðabæ.

Lokið
19.06.2024

Upplýsingar um auglýst útboð

Klaustrið í Garðabæ Samstarfsverkefni um endurbætur viðhald og rekstur

Staða útboðs
Lokið
Útboð opnar
19.06.2024
Útboð lýkur
17.07.2024
Skoða umfjöllun í fundargerðum

Athugið að þessu útboði er lokið

Húsnæðið er betur þekkt undir heitinu Klaustrið og var áður í eigu Sankti Jósefssystra.

Í kaupsamningi Garðabæjar og systranna er kvöð, sem gildir til ársins 2028, um að húsnæðið verði nýtt fyrir starfsemi í þágu aldraðra eða annarrar sambærilegrar starfsemi á sviði mannúðar, heilbrigðismála, barna eða unglinga. Húsnæðið hefur verið í takmarkaðri notkun undanfarið og þarfnast skv. fyrirliggjandi ástandsmati töluverðs viðhalds og endurnýjunar.

Leitað er að aðilum sem t.d. væru tilbúnir til að:

  • Kaupa eða leigja húsnæðið að hluta eða í heild til að reka þar starfsemi sem rúmast innan ramma þeirra kvaða sem á því hvíla.
  • Sjá um viðhald og endurbætur húsnæðisins m.t.t. þeirrar starfsemi.

Garðabær hefur mikinn áhuga á að húsnæðið gangi í endurnýjun lífdaga hvað varðar endurbætur og gott viðhald og að það sé gætt nýju lífi með öflugri starfsemi sem tekur tillit til umhverfisins og íbúa í nágrenninu.

Útboðsgög eru ekki lengur aðgengileg.

Klaustrið í Garðabæ Samstarfsverkefni um endurbætur viðhald og rekstur - Garðabær