Beint í efni

Þjón­usta og við­hald gatna­lýs­ingar

Sveitarfélögin Garðabær og Hafnarfjörður ásamt Vegagerðinni óska eftir tilboðum í: „Þjónustu og viðhald gatnalýsingar“

Lokið
15.10.2021

Upplýsingar um auglýst útboð

Þjónusta og viðhald gatnalýsingar

Staða útboðs
Lokið
Útboð opnar
15.10.2021
Útboð lýkur
24.11.2021
Skoða umfjöllun í fundargerðum

Athugið að þessu útboði er lokið

Sveitarfélögin Garðabær og Hafnarfjörður ásamt Vegagerðinni óska eftir tilboðum í :

„Þjónustu og viðhald gatnalýsingar“

Verkið felur í sér þjónustu og viðhald á allri gatnalýsingu í sveitarfélögunum ásamt útskiptingu lampa og færslu á búnaði úr dreifistöðvum. Á svæðinu eru þrír eigendur á gatnalýsingarkerfinu þ.e. Garðarbær, Hafnarfjörður og Vegagerðin og nær þessi samningur yfir kerfi þeirra allra bæði á veitusvæði HS Veitna og Orku náttúrunnar. Gatnalýsingarkerfið samanstendur af dreifiskápum, jarðstrengjum, staurum og lömpum.

Samningur nær til þriggja ára með möguleika á framlengingu í tvö skipti, eitt ár í senn. Frávikstilboð verða ekki leyfð.

Útboðsgögn eru ekki lengur aðgengileg.

Þjónusta og viðhald gatnalýsingar - Garðabær