Beint í efni

Út­boð á þjón­ustu og við­hald gatna­lýs­ingar í Garða­bæ

Verkið felur í sér þjónustu og viðhald á allri gatnalýsingu í sveitarfélaginu bæði á veitusvæði HS Veitna og Veitna.

Í auglýsingu
01.10.2026

Upplýsingar um auglýst útboð

Útboð á þjónustu og viðhald gatnalýsingar í Garðabæ

Staða útboðs
Í auglýsingu
Útboð opnar
01.10.2026
Útboð lýkur
03.11.2026
Slóð á útboðsvefSkoða umfjöllun í fundargerðum

Gatnalýsingarkerfið samanstendur af dreifiskápum, jarðstrengjum, staurum og lömpum ásamt undirgöngum og fleira.

Samningur nær til þriggja ára með möguleika á framlengingu í tvö skipti, eitt ár í senn. Frávikstilboð verða ekki leyfð.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg undir vefslóðinni https://gardabaer.utbodsgatt.is/thjonusta-og-vidhald-gatnalysingar-2027-2030 og eru þau aðgengileg öllum án endurgjalds.

Tilboðum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í útboðsgáttina og fær bjóðandi staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og bjóðendur eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

Skilafrestur tilboðs er til kl. 10.00 þriðjudaginn 3. nóvember 2026

Útboð á þjónustu og viðhald gatnalýsingar í Garðabæ - Garðabær