Beint í efni

Út­boð - Álfta­nes, mið­svæði, gatna­gerð og lagn­ir - eft­ir­lit

ÚTBOÐ - ÁLFTANES, MIÐSVÆÐI
Svæði 4 – Kumlamýri - Gatnagerð og lagnir - Eftirlit

Lokið
19.03.2021

Upplýsingar um auglýst útboð

Útboð - Álftanes, miðsvæði, gatnagerð og lagnir - eftirlit

Staða útboðs
Lokið
Útboð opnar
19.03.2021
Útboð lýkur
30.03.2021
Skoða umfjöllun í fundargerðum

Athugið að þessu útboði er lokið

Garðabær, Veitur ohf, HS Veitur, Gagnaveita Reykjavíkur ehf. og Míla ehf. óska eftir tilboðum í eftirlitsverkið: Álftanes miðsvæði, svæði 4 - Kumlamýri, gatnagerð og lagnir - eftirlit.

Eftirlitsverkið felst í því að hafa eftirlit fyrir Garðabæ, HS Veitur hf., Veitur ohf., Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Mílu ehf. með útboðsverkinu: Álftanes, Miðsvæði, Svæði 4 - Kumlamýri, gatnagerð og lagnir. Í útboðsverkinu er um að ræða gatna- og stígagerð, lagnavinnu og ofanvatnsrásir vegna uppbyggingar á nýju íbúðahverfi í Kumlamýri á Álftanesi.

Gerðar eru kröfur um að eftirlitsaðili hafi góða þekkingu og reynslu af sambærilegum verkum. Eftirlitsaðili skal annast allar nauðsynlegar mælingar og mæla inn allar lagnir veitufyrirtækja.

Eftirlitsverkið skal vinna samkvæmt útboðs- og verklýsingu auk verksamninga og annarra fylgigagna samnings um ofangreint útboðsverk.

Útboðsverkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. október 2021. Eftirlitsaðili skal standa að fullu við sínar skuldbindingar eigi síðar en 1. janúar 2022.

Tilboð verða opnuð á hjá Verkís verkfræðistofu, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík, þriðjudaginn 30. mars 2021, kl. 10.00 og skulu tilboð send inn með rafrænum hætti.

Útboðsgögn eru ekki lengur aðgengileg.

Útboð - Álftanes, miðsvæði, gatnagerð og lagnir - eftirlit - Garðabær