Útboð - Hesthúsahverfi Kjóavöllum – Gatnagerð og lagnir
Garðabær óskar eftir tilboðum í útboðið Hesthúsahverfi Kjóavöllum – Gatnagerð og lagnir
Upplýsingar um auglýst útboð
Útboð - Hesthúsahverfi Kjóavöllum – Gatnagerð og lagnir
Athugið að þessu útboði er lokið
ÚTBOÐ
Garðabær óskar eftir tilboðum í :
Hesthúsahverfi Kjóavöllum – Gatnagerð og lagnir
Verkið felur í sér uppbyggingu nýrra gatna og reiðstíga og lagningu veitna fyrir nýtt hesthúsahverfi á Kjóavöllum við Elliðavatnsveg, við sveitarfélagsmörk Garðabæjar og Kópavogs.
Verkið felur í sér nýbyggingu gatna, reiðstíga, heygeymslu- og sorpsvæðis. Heildarlengd gatna er um 1.100m, reiðstíga um 1.600m og heildarstærð plana er um 4.500m².
Einnig felur verkið í sér alla vinnu við lagningu fráveitu-, vatns- og hitaveitulagna, rafmagnsstrengja og að reisa ljósastaura og -búnað fyrir nýjar götur og reiðstíga auk núverandi reiðstíga sunnan við hverfið. Jafnframt skal að færa fjarskiptalagnir Mílu á svæðinu. Heildarlengd fráveitulagna er um 3.800m, hitaveitulagna um 2.900m og vatnlagna um 1.700m. Fjöldi ljósastaura er um 130.
Skiladagur verksins er 15. desember 2022.
Útboðsgögn eru ekki lengur aðgengileg.