Útboð - Stækkun og endurbætur á leikskólanum Kirkjubóli
Garðabær óskar eftir tilboðum í stækkun og endurbætur á leikskólanum Kirkjubóli við Kirkjulund 1 í Garðabæ.
Upplýsingar um auglýst útboð
Útboð - Stækkun og endurbætur á leikskólanum Kirkjubóli
Athugið að þessu útboði er lokið
Garðabær óskar eftir tilboðum í stækkun og endurbætur á leikskólanum Kirkjubóli við Kirkjulund 1 í Garðabæ. Verkinu verður áfangaskipt en um er að ræða nýja viðbyggingu um 80 m2 að grunnfleti með útveggjum úr forsteyptum steypueiningum, viðbygging skilast fullbúin með innréttingum ásamt
endurinnréttingu á eldri hluta skólans alls um 462 m2.
Tilboðum skal skilað á Bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 2. maí 2019. Þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.
Verkinu skal skilað fullbúnu til verkkaupa þann 29. nóvember 2019.
Útboðsgögn eru ekki lengur aðgengileg.