Beint í efni

Út­boðs­aug­lýs­ing - Ur­riða­holts­skóli 2. áfangi

Garðabær, Garðatorgi 7, kt.: 570169-6109, auglýsir eftir tilboðum í verkið: Urriðaholtsskóli 2. áfangi - Uppsteypa og fullnaðarfrágangur húss og lóðar.

Lokið
14.05.2022

Upplýsingar um auglýst útboð

Útboðsauglýsing - Urriðaholtsskóli 2. áfangi

Staða útboðs
Lokið
Útboð opnar
14.05.2022
Útboð lýkur
29.06.2022
Skoða umfjöllun í fundargerðum

Athugið að þessu útboði er lokið

Urriðaholtsskóli í Garðabæ er nýr heildstæður skóli fyrir 1-10. bekk, ásamt 6 deilda leikskóla. Sambyggt skólanum verður jafnframt íþróttahús og sundlaug (3.áfangi). 1. áfangi var tekinn í notkun 2018.

Útboðið er almennt opið útboð. Jarðvinnu vegna þessa áfanga er þegar lokið.

Byggingin er 2ja hæða skólabygging auk kjallara að hluta. 2.áfangi verður sambyggður við vesturgafl fyrri áfanga og að öllu leyti gerður eins og 1. áfangi. Staðsteyptur og einangraður að utan, klæddur álpanelum, með steyptu flötu, einangruðu, dúklögðu og tyrfðu þaki. Jarðvinnu vegna þessa áfanga er þegar lokið.

Byggingunni skal skilað fullbúinni að utan sem innan 29. desember 2023. Tveimur heimasvæðum skal skila tilbúnum til notkunar 1. ágúst 2023. Hluta lóðarinnar skal skila fullfrágengnum 15. nóvember 2022.

Helstu stærðir:

  • Grunnflötur byggingar um: 2.100 m² (kjallari 750 m², 1. hæð 2.100 m², 2. hæð 2.050 m².)
  • Heildar brúttóstærð um: 4.900 m²
  • Mótafletir: 10.800 m²
  • Steinsteypa: 2900 m³
  • Steypustyrktarjárn: 170 tonn
  • Þakflötur: um 2.100 m²
  • Gólfflötur (nettó): 4.370 m²

Útboðsgögn eru ekki lengur aðgengileg.

Útboðsauglýsing - Urriðaholtsskóli 2. áfangi - Garðabær