Beint í efni

Út­leiga rým­is á 2. hæð Mið­garðs – Að­staða fyr­ir heilsu­eflandi starf­semi

Garðabær leitar að áhugasömum aðila til að leigja um 600 fermetra rými á 2. hæð íþróttamiðstöðvarinnar Miðgarðs í bæjarfélaginu.

Lokið
14.02.2025

Upplýsingar um auglýst útboð

Útleiga rýmis á 2. hæð Miðgarðs – Aðstaða fyrir heilsueflandi starfsemi

Staða útboðs
Lokið
Útboð opnar
14.02.2025
Útboð lýkur
13.03.2025
Skoða umfjöllun í fundargerðum

Athugið að þessu útboði er lokið

Garðabær leitar að áhugasömum aðila til að leigja um 600 fermetra rými á 2. hæð íþróttamiðstöðvarinnar Miðgarðs í bæjarfélaginu. Verið er að leita að leigjanda sem mun starfrækja í rýminu heilsueflandi starfsemi, s.s. sjúkraþjálfun eða sambærilegt, mögulega í bland við annars konar tengda starfsemi.

Garðabær hefur þá framtíðarsýn að Miðgarður sé þak yfir framúrskarandi og fjölbreytta heilsueflandi starfsemi sem þjóni nærumhverfi sínu. Meginhluti þeirrar starfsemi sem nú er rekin í Miðgarði er tengd íþróttaiðkun og heilsusamlegri afþreyingu.

Miðað er við að gerður verði leigusamningur til 10 ára með möguleika á framlengingu þrisvar sinnum um fimm ár. Heildarleigutími getur því orðið allt að 25 ár.

Útboðsgögn eru ekki lengur aðgengileg.

Útleiga rýmis á 2. hæð Miðgarðs – Aðstaða fyrir heilsueflandi starfsemi - Garðabær