Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2026-2029 (EES)
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2026-2029.
Í auglýsingu
13.08.2026
Upplýsingar um auglýst útboð
Vetrarþjónusta gatna í Garðabæ 2026-2029 (EES)
Staða útboðs
Í auglýsingu
Útboð opnar
13.08.2026
Útboð lýkur
15.09.2026
Verkið felst í snjóruðningi og hálkueyðingu gatna í þrjá vetur, þ.e. veturna 2026-2027, 2027‑2028 og 2028-2029. Um er að ræða allar helstu umferðargötur í Garðabæ.
Helstu magntölur eru:
· Forgangur 1: Götulengd: 15 km
· Forgangur 2: Götulengd: 45 km
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef COWI: https://mannvit.ajoursystem.net/ frá kl. 17:00 þann 13. ágúst 2026.
Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á útboðsvefinn fyrir kl. 10:00 þann 15. september 2026.
Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.