Beint í efni

Vetr­ar­þjón­usta stofn­ana­lóða og hús­agatna í Garða­bæ 2026-2029 (EES)

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029.

Í auglýsingu
13.08.2026

Upplýsingar um auglýst útboð

Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029 (EES)

Staða útboðs
Í auglýsingu
Útboð opnar
13.08.2026
Útboð lýkur
15.09.2026
Slóð á útboðsvefSkoða umfjöllun í fundargerðum

Verkið felst í snjóruðningi og hálkueyðingu á bílastæðum stofnana og í húsagötum í þrjá vetur, þ.e. veturna 2026-2027, 2027-2028 og 2028-2029. Um er að ræða bílastæði á öllum helstu stofnanalóðum í Garðabæ ásamt húsagötum.

Helstu magntölur eru:

  • Húsagötur 300 km
  • Leikskólar 13.870 m2
  • Grunnskólar 12.710 m2
  • Íþróttamiðstöðvar 21.340 m2
  • Kirkjur 4.750 m2
  • Aðrar stofnanir 10.250 m2

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef COWI: https://mannvit.ajoursystem.net/ frá kl. 17:00 þann 13. ágúst 2026.

Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á útboðsvefinn fyrir kl. 10:15 þann 15. september 2026.

Fundargerð verður send öllum bjóðendum eftir opnun tilboða.

Vetrarþjónusta stofnanalóða og húsagatna í Garðabæ 2026-2029 (EES) - Garðabær