Beint í efni

Víf­ils­staða­veg­ur frá hring­torgi við Spít­ala­veg að Ell­iða­vatns­vegi - gatna­gerð og lagn­ir

Í auglýsingu
30.06.2026

Upplýsingar um auglýst útboð

Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi - gatnagerð og lagnir

Staða útboðs
Í auglýsingu
Útboð opnar
30.06.2026
Útboð lýkur
17.07.2026
Skiladagur verks
01.07.2027
ÚtboðskerfiSkoða umfjöllun í fundargerðum

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið:

Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi - gatnagerð og lagnir

Verkið felst í jarðvegsskiptum, malbikun gatna og stíga, fráveitu og götulýsingu ásamt yfirborðsfrágangi á Vífilsstaðavegi frá Spítalavegi að Elliðavatnsvegi og nýrri aðkomugötu að golfskála GKG í Garðabæ.

Verkinu skal lokið fyrir 01. júlí 2027.

Helstu magntölur eru:

  • Gröftur 37.000 m3
  • Bergskering 5.000 m3
  • Fylling 11.000 m3
  • Burðarlög 10.000m3
  • Malbikun 20.000 m2
  • Hellulögn 750 m2
  • Þökulögn 3.300 m2
  • Forsteyptur kantsteinn 900 m
  • Staðsteyptur kantsteinn 1.300 m
  • Strenglagnir 1.500 m
  • Ljósastaurar 49 stk
  • Gröftur fyrir lögnum 3.500 m3
  • Upphækkun á brunnum 3 stk
  • Niðurföll 45 stk

Útboðsgögn verða afhent rafrænt í útboðskerfinu

https://efla.ajoursystem.net/tender

Þriðjudaginn 30.júní 2026 klukkan 14:00 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 17. júlí 2026.