Alls bárust 454 tilboð í byggingarrétt lóða í Hnoðraholti suður
Fréttir
05.11.2026

Mikill áhugi á lóðum í Hnoðraholti suður.
Garðabær auglýsti í október til sölu á almennum markaði byggingarrétt fyrir 26 einbýlishúsalóðir og alls 23 íbúðir í fjórum raðhúsalengjum í Hnoðraholti suður.
Auk þess var leitað eftir tilboðum frá byggingarsamvinnufélögum í byggingarrétt fyrir samtals 18 íbúðir í fimm raðhúsalengjum.
Frestur til að skila inn tilboði var kl. 12:00 föstudaginn 30. október 2026. Tilboðin voru opnuð og tekin fyrir á fundi bæjarráðs Garðabæjar kl. 08:00 þriðjudaginn 3. nóvember 2026.
Áhugi á lóðum í Hnoðraholti suður er mikill og bárust alls 454 tilboð í byggingarrétt lóðana, tilboð skiptust svona:
- 57 tilboð í raðhúsalóðir
- 394 tilboð í einbýlishúsalóðir
- 3 tilboð í raðhúsalóðir til byggingarsamvinnufélaga
Tilboðin verða skráð, flokkuð nánar og tekin til afgreiðslu og kynningar á fundi bæjarráðs þriðjudaginn 10. nóvember 2026.