Árshlutauppgjör Garðabæjar endurspeglar krefjandi aðstæður

Árshlutauppgjör Garðabæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 endurspeglar krefjandi ytra umhverfi á tímabilinu en fjárhagsstaða sveitarfélagsins er traust.
Uppgjörið var lagt fram á fundi bæjarráðs Garðabæjar þriðjudaginn 22. september. Rekstrarniðurstaða samstæðu Garðabæjar á tímabilinu var neikvæð um 277 milljónir króna. Rekstrartekjur tímabilsins námu 17,8 milljörðum króna en rekstrargjöld 15,6 milljörðum króna. Afkoma fyrir fjármagnsliði og afskriftir var jákvæð um 2,3 milljarða króna og veltufé frá rekstri nam á sama tíma 1,0 milljarði króna.
Fjármagnsliðir fara verulega yfir áætlun ársins vegna mun hærri verðbólgu en þjóðhagsspá gerði ráð fyrir. Fjármagnsliðir nema 1,4 milljarði króna en til samanburðar gerði áætlun fyrir árið í heild ráð fyrir 1,9 milljarði króna.
Efnahagsreikningur sýnir sterka stöðu sveitarfélagsins. Langtímalántökur eru hóflegar þrátt fyrir miklar fjárfestingar í ört stækkandi sveitarfélagi. Eigið fé Garðabæjar nam í lok júní 33 milljörðum króna sem er um 43% eiginfjárhlutfall.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir niðurstöðuna nokkuð ásættanlega í ljósi efnahagsaðstæðna. „Við höfum ástæðu til að ætla að afkoman verði betri á síðari hluta ársins. Við erum þó meðvituð um ytri aðstæðurnar. Það er forgangsmál að ná tökum á verðbólgu í landinu og við ætlum okkur að sjálfsögðu að taka þátt í þeirri vegferð með hóflegum gjaldskrárhækkunum og aðhaldssemi.“