Ársleiga á matjurtakössum til ræktunar allan veturinn

Garðbæingum gefst í fyrsta sinn kostur á að leigja matjurtakassa til ræktunar heilt ár í senn en ekki bara yfir sumartímann.
Um er að ræða tilraunaverkefni vegna eftirspurnar fyrir þá íbúa sem vilja getað ræktað matjurtir allan veturinn, svo sem hvítlauk.
Eingöngu hluti þeirra matjurtakassa sem er í núverandi matjurtagörðum verður í ársútleigu og aðrir matjurtakassar fara í útleigu með hefðbundnum hætti fyrir sumarið 2027.
Um er að ræða eftirfarandi matjurtakassa sem fara í ársleigu:
- Í Hæðahverfi: Matjurtakassar nr B1-B9
- Á Álftanesi: Matjurtakassar nr A11-A14 (nýir kassar sem bætast við)
- Í Urriðaholti, við enda Dýjagötu: Matjurtakassar nr D1-D12
Á útleiguvef matjurtakassana er hægt að sjá hvaða kassar eru í útleigu og staðsetningu þeirra.
Helstu upplýsingar fyrir ársleigu
- Leigutími er frá 20. september 2026 til 15. september 2027. Leigutakar fá póst þegar hægt verður að hefja ræktun í görðunum.
- Matjurtakassar eru 2 x 4 metrar að stærð, eða 8 m², og merktir með númerum.
- Vatn til vökvunar er á öllum svæðum.
- Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með.
- Leiguverð fyrir ársleigu er 11.000 kr og greiðist þegar garður er tekinn á leigu.
Hver einstaklingur getur aðeins leigt einn matjurtakassa. Að leigutíma loknum þarf að taka allar matjurtir upp og skila kössunum tómum. Hér má lesa nánar um matjurtagarðana í Garðabæ.