Bílalaust Garðatorg á afmælishátíð

Vegna undirbúnings og framkvæmdar afmælishátíðar Garðabæjar þann 29. ágúst biðjum við eigendur bifreiða sem eru lagðar á torginu eða í bílakjallara Garðatorgs um að færa bifreiðar sínar fyrir kl. 8:00 föstudaginn 28. ágúst.
Laugardaginn 29. ágúst verður afmælishátíð Garðabæjar haldin á Garðatorgi í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins. Fram undan er glæsileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna með tónlist, skemmtun, afmælisköku, andlitsmálningu, hoppuköstulum, matarvögnum og fjölbreyttum uppákomum. Hátíðarsvæðið verður opnað kl. 13:00 og setning fer fram kl. 14:00.
Vegna undirbúnings og framkvæmdar hátíðarinnar verður lokað fyrir umferð bíla upp á bílastæði Garðatorgs og inn í bílakjallara frá Vífilsstaðavegi frá morgni föstudagsins 28. ágúst. Eigendur bifreiða sem eru lagðar á torginu eða í bílakjallaranum eru beðnir um að færa bifreiðar sínar fyrir kl. 8:00 þann dag.
Íbúar við Garðatorg 2a og 2b munu áfram hafa aðgang að sínum bílastæðum og opið verður inn á þann hluta bílakjallarans.
Gestir hvattir til að koma gangandi, hjólandi eða nýta almenningssamgöngur
Gestir hátíðarinnar eru hvattir til að koma gangandi, hjólandi eða nýta almenningssamgöngur eftir því sem kostur er.
Á meðfylgjandi korti eru merkt nokkur nærliggjandi bílastæði sem hægt er að nýta á laugardeginum. Þar á meðal eru stæði við Ásgarð, beggja vegna Garðatorgs, við leikskólana Kirkjuból og Bæjarból, framan við Hofsstaðaskóla og á bílastæðunum framan við húsnæði Distica, aðkoma frá Bæjarbraut.

Hlökkum til að sjá ykkur á Garðatorgi 29. ágúst. Nánari upplýsingar um dagskrána má finna hérna.