Beint í efni

Bor­un og spreng­ingar í Arn­ar­landi

Tilkynningar
09.09.2026

Áætlað er að hefja vinnu við borun og sprengingar í Arnarlandi föstudaginn 11. september og ætti þeirri vinnu að vera lokið tveimur mánuðum síðar. Ekki verður sprengt alla dagana á þessu tímabili.

Öll sprengiskotin verða byrgð með sprengimottum til að koma í veg fyrir grjótkast. Titringsmælar verða settir upp til að vakta þann titring sem sprengingar valda þannig að hægt sé að halda titringi í samræmi við reglugerðir.

Til viðvörunar um að sprenging sé væntanleg koma þrjú stutt hljóðmerki og svo líður ca. ein mínúta þar til skoti er hleypt af, sem getur orðið lengra ef fólk er nærri þeim stað sem verið er að sprengja á. Svo þegar sprengingu er lokið kemur eitt langt hljóðmerki.

Ef einhverjar athugasemdir eða spurningar vakna má hafa samband við eftirlitsmann á vegum verkkaupa, jokull@vsr.is sem hefur umsjón með þessari jarðvinnu

Sjá einnig: Framkvæmdir hafnar við Arnarland