Framkvæmdir við göngu- og hjólastíga við Ásahverfi

Framkvæmdir við að aðskilja göngu- og hjólastíga við Ásahverfi eru enn í fullum gangi og nú er vinna hafin milli göngubrúar og Lyngáss. Hjáleið er um Stórás.
Nú er vinna hafin við hluta göngustígar vestan megin við Hafnarfjarðarveginn frá göngu- og hjólabrúnni við Breiðás að Lyngási. Rauðu merkin á meðfylgjandi mynd með frétt sýna afmörkun vinnusvæðis og ekki er hægt að fara gangandi eða hjólandi þar um heldur þarf að fara hjáleið um Stórás sem sýnd er með blárri punktalínu á myndinni.
Aðgengi að göngu- og hjólabrú
Aðgengi að göngu- og hjólabrúnni vestan megin Hafnarfjarðarvegar um Breiðás er enn eingöngu um tröppur og hjólaramp (með tvöföldum rennum) en áfram er lokað um stóra rampinn upp að brúnni.

Strætóstoppistöð opin
Strætóstoppistöð við Hafnarfjarðarveg er opin. Áfram er unnið við frágang og hellulögn á eldra vinnusvæði milli göngubrúar og Álftanesvegar og því mikilvægt að fara varlega á þeim kafla.
Áætlað er að lokun á þessu svæði muni vara fram í september.