Aðskildir göngu- og hjólastígar við Ásahverfi

Nýlega hófust framkvæmdir við að aðskilja göngu- og hjólastíga við Ásahverfi, vestan Hafnarfjarðarvegar. Aðgengi að brú um Hafnarfjarðarveg verður eingöngu um tröppur og ramp í tröppunum. Strætóstoppistöð við Hafnarfjarðarveg er opin en aðgengi í fylgd starfsmanna á verkstað að degi til.
Næstu tvær vikur, frá og með þriðjudeginum 21. júlí, fer fram vinna á stíg vestan við göngu- og hjólabrúna yfir Hafnarfjarðarveg hjá Breiðási þar sem verið er að aðskilja göngu- og hjólastíginn. Á meðan á því stendur er aðgengi að brúnni eingöngu um tröppur og hjólaramp (stigi með tvöföldum rennum) sem er á tröppunum þar sem hægt er að leiða hjól og barnavagna upp meðfram við hliðina á tröppunum. Sjá mynd hér með frétt sem sýnir gönguleið upp á brúna.
Stór rampur sem nær niður fyrir brúna er lokaður tímabundið á meðan á framkvæmdunum stendur.
Eftir tvær vikur verður farið í framkvæmdir austan við göngubrúna en stóri rampurinn vestan megin verður áfram lokaður í einhverjar vikur til viðbótar þar sem hann verður grafinn niður og endurgerður með öðruvísi sveig. Hjáleið yfir Hafnarfjarðarveginn fyrir þá sem geta ekki nýtt sér tröppur eða minni rampinn upp á brúna er annað hvort um undirgöng norðar á móts við Aktu taktu eða sunnar um göngubrú við Engidal.
Á mynd hér fyrir neðan má sjá bláa punktalínu sem sýnir göngu- og hjólaleiðir næstu vikur. Rauðu strikin sýna verkmörk. Hægt er að smella á myndina til að stækka hana.

Strætóstoppistöð við Hafnarfjarðarveg opin
Til að komast að strætóstoppistöð við Hafnarfjarðarveg (í átt að Hafnarfirði í suðurátt, vestan megin við Hafnarfjarðarveginn) er hægt að komast yfir verksvæðið niður malbikaða stiginn en lokað verður fyrir tröppurnar niður að strætóskýlinu.
Á meðan vinna er í gangi á daginn verður starfsmaður á vegum verktaka sem fylgir fólki að strætóstöðinni en þess utan verður opið aðgengi að stígnum sem liggur niður að strætóskýlinu.

Vegfarendur eru beðnir um að fylgja öllum merkingum á svæðinu og fara varlega um framkvæmdasvæðið.
Heildstætt stígakerfi með aðskildum göngu- og hjólastígum
Framkvæmdirnar vestan Hafnarfjarðarvegar við Ásahverfi er hluti af endurbótum á hjólastígum á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við Samgöngusáttmála og er verkefni á vegum Betri samgangna. Einnig hafa verið framkvæmdir vestan Hafnarfjarðarvegar sitt hvorum megin við undirgöngin við Arnarneshæð þar sem verið er að tvöfalda stígakerfið með aðskildum göngu- og hjólastígum eins og nú er verið að byrja gera við Ásahverfið. Jafnframt hefur farið fram steypuvinna á undirstöðum nýrrar hjólabrúar sem áætlað er að komi yfir lækinn hjá göngu- og hjólastígunum vestan Hafnarfjarðarvegar sunnan við Hegranes.
Við sveitarfélagamörk Kópavogs og Garðabæjar, við enda Súluness, standa jafnframt yfir veituframkvæmdir fyrir nýtt íbúðahverfi í Arnarlandi, sjá frétt hér.
Til framtíðar er stefnt að því að tengja stígakerfið vestan Hafnarfjarðarvegar við stígana vestan Reykjavíkurvegar í Hafnarfirði með nýrri brú í Engidal yfir Álftanesveg. Smám saman er því að verða til heildstætt stígakerfi með aðskildum göngu- og hjólastígum sem myndar samfelldan norður-suður ás um fjögur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Hafnarfjörð, Garðabæ, Kópavog og Reykjavík.
Sjá einnig upplýsingar í frétt á vef Betri samgangna.