Framlengjum vorhreinsun
Fréttir
27.05.2026

Dugnaður bæjarbúa í vorhreinsun lóða hefur verið mikill. 10 gámar fá að standa áfram út föstudaginn.
Vorhreinsun lóða er nú formlega lokið en ríflega 30 gámum var komið fyrir víða um bæ þar sem tekið var á móti garðaúrgangi sem íbúar komu sjálfir í gámana. Móttökurnar voru stórgóðar í ár líkt og áður og að gefnu tilefni munu 10 gámar fá að standa áfram út föstudaginn.
Þetta eru staðsetningar gámanna skv. korti:
- 1. Grenndarstöð Norðurnesvegur
- 5. Grenndarstöð Suðurnesvegur
- 11. Grenndarstöð Sjáland
- 17. Bílastæði við grenndargáma Ásgarði
- 20. Opið svæði við Krókamýri/Ljósamýri
- 22. Graseyja á milli Móaflatar 12 og 16
- 24. Grenndarstöð Skólabraut
- 26. Gamla nunnuklaustur, Holtsbúð 87
- 27. Við leikskólann Lundaból
- 30. Opið svæði við Hæðarbraut/Aftanhæð

Dugnaður bæjarbúa í þessu átaki hefur ávallt verið mikill. Til gamans má geta þess að í fyrra voru 33 gámar losaðir 147 sinnum yfir tímabilið 9. til 22. maí.