Beint í efni

Fund­ir bæj­ar­stjórn­ar á haust­önn

Fréttir
17.08.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Bæjarstjórn Garðabæjar kemur saman til fyrsta fundar eftir sumarleyfi fimmtudaginn 18. ágúst nk. Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru jafnframt í beinni útsendingu á vef Garðabæjar.

Bæjarstjórn Garðabæjar kemur saman til fyrsta fundar eftir sumarleyfi fimmtudaginn 18. ágúst nk. Fundir bæjarstjórnar eru haldnir fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar og hefjast kl. 17 í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar á Garðatorgi 7.

Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir og eru þeir jafnframt í beinni útsendingu á vef Garðabæjar. Hér má sjá vefútsendingu næsta fundar. Einnig er hægt að sjá upptökur af eldri fundum hér.

Fundargerðir bæjarstjórnar eru birtar á vef Garðabæjar daginn eftir fund. Áhugasamir íbúar sem og aðrir sem vilja fylgjast með fréttum og tilkynningum á vef Garðabæjar geta skráð sig á póstlista með því að skrá netfang neðst á forsíðu vefs Garðabæjar undir póstlista.

Fundir bæjarstjórnar á haustönn 2022

18. ágúst,
1. og 15. september,
6. og 20. október,
3. og 17. nóvember,
1. og 15. desember.