Beint í efni

Íþrótta­vika í Garða­bæ – „Ég hvet bæj­ar­búa til að kynna sér hvað er í boði“

Fréttir
24.09.2026

Íþróttavika í Garðabæ verður haldin dagana 23.–30. september í tilefni af Íþróttaviku Evrópu. Sólveig Valgeirsdóttir, forstöðumaður félagsmiðstöðva eldri borgara, er meðal þeirra sem sjá um skipulagningu vikunnar. Hún leggur áherslu á að dagskrá Íþróttavikunnar sé hugsuð fyrir fólk á öllum aldri.

Spurð út í markmið vikunnar segir Sólveig: „Með íþróttavikunni erum við að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Hún er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni og líkamlegu ástandi. Áhersla er á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Hugsunin er að Evrópubúar sameinist undir slagorðinu #BeActive og við í Garðabæ viljum leggja okkar af mörkum.“

Hvernig er dagskráin sem búið er að stilla upp?

„Fimmtudaginn 24. september kl. 17:30 býður hlaupahópur Stjörnunnar öllum, hvort sem það eru vanir eða byrjendur, að koma á opna æfingu í Miðgarði. Þar tekur Arnar Pétursson ásamt fleira góðu fólki í hlaupahópnum á móti þátttakendum. Það ganga margir með þann draum að geta hlaupið og þeir sem eru þegar að hlaupa myndu vilja hlaup með jafningjum og það er því tilvalið að stunda hlaup undir leiðsögn og í góðum félagsskap. Skokkhópur Álftaness tekur einnig vel á móti þeim sem vilja koma og prófa mánudaginn 28. september kl. 17:30. Í Álftaneslaug föstudaginn 25. september og nýju sundlauginni í Urriðaholti 26. september verður hægt að fara í Zumba og tilvalið fyrir fjölskylduna að skella sér í það. Sund er frábær heilsurækt og um að gera að nýta þessar frábæru laugar í bæjarfélaginu. Lyftingafélagið sem er með aðsetur í Miðgarði er ört vaxandi og það er mikilvægt fyrir alla að huga að styrktaræfingum. Þriðjudaginn 29. sept. verður opin æfing hjá þeim og eru allir velkomnir. Sama dag verður Virkniþing eldra fólks haldið í Miðgarði frá kl. 10:30-14:00. Þar verður mikið um að vera en þar verður hægt að koma í hreyfingu, fá hressingu og hlusta á fróðleg erindi,“ segir Sólveig.

Sólveig minnir á að öllum sé velkomið að taka þátt í dagskrá Íþróttavikunnar.

„Við viljum ná til almennings, t.d. þeim sem ekki eru í virkni í dag en langar að koma sér í gang. Stjarnan og önnur félög í bænum bjóða upp á öflugt starf og þátttaka á meðal barna er mikil. En við þurfum að ná t.d. til unga fólksins sem mögulega er hætt íþróttaiðkun sem það stundaði sem börn og ungmenni. Einnig að höfða til þeirra sem ekki hafa gefið sér tíma til í amstri dagsins en langar að finna leið til að koma sér aftur af stað í hreyfingu. Svo leggjum við líka áherslu á að ná til eldra fólks en þar skiptir hreyfing ekki síður máli auk þess að vera í góðum félagsskap.“

Virkniþing eldra fólks í Miðgarði

Þriðjudaginn 29. sept. verður Virkniþing eldra fólks haldið í Miðgarði. Spurð nánar út í það segir Sólveig: „Það hefst kl. 10:30 og þangað geta allir komið og tekið þátt í hreyfingu. Við verðum með fimm stöðvar og hægt verður að taka þátt í tveimur. Við fáum kynningu á göngufótbolta sem er skemmtileg nýjung og verður gaman að prófa. Hægt verður að fara í pílu en það verður leiðbeinandi frá pílufélaginu á staðnum sem mun kenna réttu tæknina. Línudans er skemmtileg hreyfing og hægt verður að prófa hann ásamt stólajóga og boccia. Það ættu því allir að finna eitthvað sem þeir geta tekið þátt í.

Að lokinni hreyfingu verður súpa og kaffisopi í boði og kl.13:00 verður hægt að hlýða á fyrirlestra frá sjúkraþjálfara og næringarfræðingi um áhrif öldrunar á líkamann og hver er besta forvörnin. Dagskrá lýkur um kl. 14:00.“

Er eitthvað nýtt sem þú sjálf ætlar að prófa í íþróttavikunni?

„Það er alltaf spennandi að prófa eitthvað nýtt og þar sem ég er komin á þennan virðulega aldur mun ég fara í Miðgarð á Virkniþing og prófa göngufótbolta. Svo væri gaman að koma við í nýju lauginni í Urriðaholti og taka börn og barnabörn sem þar búa með í Zumba.“

Að lokum bendir Sólveig á að í Garðabæ séu fjölmargir aðilar sem bjóða upp á hreyfingu af ýmsu tagi. „Ég hvet bæjarbúa til að kynna sér hvað er í boði.“

Facebook-viðburður virkniþings.

Íþróttavika í Garðabæ – „Ég hvet bæjarbúa til að kynna sér hvað er í boði“ - Garðabær