Beint í efni

Kjör­fund­ur vegna kosn­inga til bæj­ar­stjórn­ar Garða­bæj­ar

Tilkynningar
30.04.2026
Ráðhús Garðabæjar

Kjörfundur vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar, er fram eiga að fara laugardaginn 16. maí 2026, verður í íþróttamiðstöðinni Mýrinni og Álftanesskóla.

Í íþróttamiðstöðinni Mýrinni verður kosið í eftirfarandi kjördeildum.

I. Kjördeild Aftanhæð – Brekkuás
II. Kjördeild Brekkubyggð - Eskiás
III. Kjördeild Eskiholt - Háhæð
IV. Kjördeild Hegranes - Hraunás
V. Kjördeild Hraungata - Kinnargata
VI. Kjördeild Kirkjulundur - Lerkiás
VII. Kjördeild Lindarflöt – Maríugata 1-24
VIII . Kjördeild Maríugata 25-40 - Sjávargrund
IX. Kjördeild Sjónarvegur - Teistunes
X. Kjördeild Tjaldanes - Ögurás

Í Álftanesskóla verður kosið í eftirfarandi kjördeildum.

I. Kjördeild Asparholt – Lambhagi
II. Kjördeild Litlabæjarvör – Þóroddarkot
(Húsanöfn)

Sjá nánari upplýsingar um einstaka götur hér á vef Garðabæjar gardabaer.is

Íslenskir námsmenn sem búsettir eru á Norðurlöndum og sótt hafa um að verða teknir á kjörskrá eru á kjörskrá í I. kjördeild í íþróttamiðstöðinni Mýrinni.

Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.

Til að geta kosið þarf kjósandi að sýna fram á að hann sé sá sem hann segist vera svo sem með því að framvísa skilríki með nafni, kennitölu og mynd, t.d. ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini.

Stafræn ökuskírteini eru gild skilríki við kosningar. Kjósendur þurfa að hafa nálgast þau í Ísland.is appinu þar sem þau eru núna aðgengileg.

Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í íþróttamiðstöðinni Mýrinni á meðan á kjörfundi stendur og hverfiskjörstjórn Álftaness verður með aðsetur í húsnæði Álftanesskóla.

Talning atkvæða fer fram í Urðarbrunni, hátíðarsal Fjölbrautaskólans í Garðabæ.

Yfirkjörstjórn Garðabæjar