
Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Garðabæ
Úrslit í sveitarstjórnarkosningunum í Garðabæ 16. maí 2026 liggja fyrir.
Kosning.is
Á vefnum kosning.is má finna allar almennar upplýsingar um sveitarstjórnarkosningar sem fara fram á Íslandi laugardaginn 16. maí 2026.
Municipal elections
On the web-site kosning.is you can find information in English regarding the municipal elections in Iceland on Saturday the 16th of May 2026.
Á vefnum kosning.is má sjá upplýsingar fyrir kjósendur, framboð og kjörstjórnir.
- Kjósendur geta flett upp hvar þeir eiga að kjósa á kosning.is
- Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 17. apríl - allt um það hér
Kjörfundur
Kjörfundur vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar, er fram eiga að fara laugardaginn 16. maí 2026, verður í íþróttamiðstöðinni Mýrinni og Álftanesskóla.
Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.
Sjá upplýsingar um kjördeildir og götur innan hverrar kjördeildar hér fyrir neðan.
Kjördeildir í íþróttamiðstöðinni Mýrinni
Kjördeildir í Álftanesskóla
Framboðslistar
Yfirkjörstjórn Garðabæjar hefur veitt viðtöku sex framboðum til sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ sem fram eiga að fara laugardaginn 16. maí nk.
Framboðin hafa öll verið úrskurðuð gild en þau eru:
B - listi Framsóknarflokksins
C - listi Viðreisnar
D - listi Sjálfstæðisflokksins
G - listi Garðabæjarlistans
M - listi Miðflokksins
S - listi Samfylkingar
Nánari upplýsingar um frambjóðendur listanna:
Auglýsing frá yfirkjörstjórn um framboðslista í Garðabæ 2026
Kjörskrá
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga er fram eiga að fara laugardaginn 16. maí 2026 mun liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg, frá og með 24. apríl 2026 til kjördags.
Á kjörskrá skal taka þá sem uppfylla skilyrði 4. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og skráðir eru með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár miðað við 8. apríl 2026.
Kosningarrétt við kosningar til sveitarstjórnar á:
a. hver íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á skráð lögheimili í sveitarfélaginu,
b. hver danskur, finnskur, norskur og sænskur ríkisborgari, enda fullnægi hann að öðru leyti skilyrðum a-liðar,
c. hver erlendur ríkisborgari, annar en greinir í b-lið, sem átt hefur skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, enda fullnægi hann að öðru leyti skilyrðum a-liðar.
Námsmenn o.fl. sem dvelja á hinum Norðurlöndunum hafa hér kosningarrétt enda hafi þeir sótt um það rafrænt til Þjóðskrár Íslands að vera teknir á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrá skal samkvæmt 32. gr. kosningalaga nr. 112/2021 beint til Þjóðskrár Íslands sem tekur þær þegar til meðferðar og gerir viðeigandi leiðréttingar. Slíkar leiðréttingar má gera fram á kjördag.
Yfirkjörstjórn Garðabæjar
Yfirkjörstjórn Garðabæjar
Netfang yfirkjörstjórnar Garðabæjar er yfirkjorstjorn@gardabaer.is
- Soffía Eydís Björgvinsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson
- Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
Framboðsfrestur
Framboðsfrestur til sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ rann út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.