Beint í efni

Kjör­sókn í Garða­bæ - nýj­ustu tölur

Fréttir
16.05.2026

Hér á vef Garðabæjar verða settar inn tölur yfir daginn um kjörsókn vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar.

Kjörfundur vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar hófst ímorgun laugardaginn 16. maí 2022 kl. 09:00 og stendur til kl. 22:00 í kvöld. Kjörstaðir eru í íþróttamiðstöðinni Mýrinni við Skólabraut og Álftanesskóla við Breiðumýri.

Hér á vef Garðabæjar verða settar inn tölur yfir daginn um kjörsókn. Um leið og lokatölur, úrslit og nöfn kjörinna fulltrúa liggja fyrir verður það birt á vef Garðabæjar.

Á kjörskrá í Garðabæ eru 15.724.

Kjörsókn - nýjustu tölur

  • Klukkan 16:00 höfðu 5623 kjósendur greitt atkvæði á kjörstað. Kjörsókn var þá 35.8 %
    (Til samanburðar á sama tíma í sveitarstjórnarkosningum 2022 var kjörsókn 32,8%)
  • Klukkan 12:00 höfðu 1.669 kjósendur greitt atkvæði á kjörstað. Kjörsókn var þá 10,6%. (Til samanburðar á sama tíma í sveitarstjórnarkosningum 2022 var kjörsókn 9,9%)

Sjá einnig: Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 16. maí