Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Garðabæ
Fréttir
17.05.2026

Úrslit í sveitarstjórnarkosningum í Garðabæ 16. maí 2026 liggja fyrir. Kjörsókn í Garðabæ var 73,9% sem er töluvert meiri kosningaþátttaka en árið 2022 (64,1%).
Fjórir listar fengu fulltrúa kjörna í bæjarstjórn, D-listi Sjálfstæðisflokksins fékk 8 fulltrúa, S-listi Samfylkingar fékk 1 fulltrúa, B-listi Framsóknarflokks fékk 1 fulltrúa og G-listi Garðabæjarlistans fékk 1 fulltrúa.
Lokatölur voru eftirfarandi:
Alls greidd atkvæði voru 11 626, alls voru á kjörskrá 15 724. Sjá einnig frétt um kjörsókn yfir daginn hér.
Atkvæði féllu þannig:
Atkvæði | ||
|---|---|---|
B LISTI | Framsóknarflokkurinn | 1024 |
C LISTI | Viðreisn | 721 |
D LISTI | Sjálfstæðisflokkurinn | 6644 |
G LISTI | Garðabæjarlistinn | 988 |
M LISTI | Miðflokkurinn | 762 |
S LISTI | Samfylkingin | 1323 |