Beint í efni

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar laug­ar­dag­inn 16. maí

Fréttir
15.05.2026

Kjörfundur vegna kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar, er fram eiga að fara laugardaginn 16. maí 2026, verður í íþróttamiðstöðinni Mýrinni við Skólabraut og Álftanesskóla við Breiðumýri. Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.

Á vefnum kosning.is má finna allar almennar upplýsingar um sveitarstjórnarkosningar sem fara fram á Íslandi laugardaginn 16. maí 2026. Þar geta kjósendur flett upp hvar þeir eiga að kjósa og þar má einnig finna upplýsingar um utankjörfundaatkvæðagreiðslu sem hófst 17. apríl sl.

Municipal elections
On the web-site kosning.is you can find information in English regarding the municipal elections in Iceland on Saturday the 16th of May 2026.


Upplýsingar á vef Garðabæjar

Hér á vef Garðabæjar má einnig finna almennar upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar, þar má sjá upplýsingar um kjördeildir og götur innan hverrar kjördeildar. Einnig má þar finna upplýsingar um framboðslista í Garðabæ.

Upplýsingar um kjörsókn og kosningaúrslit

Á kjördag, laugardaginn 16. maí, verður birt frétt á vef Garðabæjar þar sem tölur um kjörsókn verða birtar yfir daginn. Frétt um lokatölur, úrslit og nöfn kjörinna fulltrúa verður birt þegar úrslit liggja fyrir.