Íbúalýðræði
Garðabær leggur áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu til íbúa og liður í því er að tryggja að bæjarbúar geti með einföldum hætti komið sjónarmiðum sínum á framfæri.


Þjóðaratkvæðisgreiðsla
Þjóðaratkvæðisgreiðsla um aðildarviðræður við ESB fara fram laugardaginn 29. ágúst 2026.
Við viljum heyra frá þér!
Það eru mikil verðmæti fólgin í því að virkja íbúa bæjarins til þátttöku í vinnu og málefnum bæjarins og geta þeir haft áhrif með ýmsum leiðum.
Markmið okkar er að allir íbúar Garðabæjar geti tekið virkan þátt.
Þú getur…
- Sent okkur tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is og málinu verður komið áfram á réttan stað
- Skrifað athugasemdir við fréttir á samfélagsmiðlum Garðabæjar. Við erum á Facebook, Instagram og Tiktok. Þar getur þú líka sent okkur skilaboð.
- Mætt á opna íbúafundi sem haldnir eru reglulega, þar geta íbúar komið sjónarmiðum sínum á framfæri
- Sent inn hugmyndir þegar samráðsverkefni fara fram og gefið öðrum tillögum atkvæði í gegnum samráðsgátt.
- Skrifað bréf til bæjarráðs Garðabæjar. Bæjarráð fundar á þriðjudagsmorgnum klukkan 08:00. Erindi sem eiga að fara fyrir næsta fund bæjarráðs verða að berast til okkar í síðasta lagi fyrir hádegi á föstudeginum áður. Þú getur sent bréfið í pósti eða tölvupósti.
- Sent inn ábendingu í gegnum ábendingagátt Garðabæjar
- Pantað viðtalstíma við bæjarstjóra í síma 525 8500 eða hitt á bæjarstjóra á opnum viðtalstímum sem boðið er upp á með reglulegu millibili.
Lýðræðisstefna Garðabæjar
Lýðræðisstefna Garðabæjar byggir á þremur meginmarkmiðum: þátttöku, þekkingu og þróun.
Endurskoðuð lýðræðisstefna Garðabæjar leit dagsins ljós í febrúar 2022 og byggir hún á þremur meginmarkmiðum: þátttöku, þekkingu og þróun. Með lýðræðisstefnu Garðabæjar eru lagðar línur fyrir farsælt samstarf til framtíðar milli kjörinna fulltrúa, stjórnsýslu og íbúa og annarra hagsmunaaðila með öflugri samráðsmenningu; rökræðum, samtali, samráði og upplýsingagjöf. Það verður gert með jákvæðni, fagmennsku og áreiðanleika í fyrirrúmi.
Hér má lesa lýðræðisstefnu Garðabæjar.
Íbúakannanir
Undanfarin ár hefur Garðabær tekið þátt í árlegri þjónustukönnun Gallup. Markmið könnunarinnar er að kanna ánægju með þjónustu í 20 stærstu sveitarfélögum landsins og gera samanburð ásamt því að skoða breytingar frá fyrri mælingum.
Niðurstöðurnar gefa dýrmæta innsýn inn í viðhorf íbúa til þjónustunnar sem bærinn veitir.
Nýjustu niðurstöður
Fyrirtækið Gallup gerði þjónustukönnun á meðal íbúa í stærstu sveitarfélögum landsins í lok árs 2025 og byrjun árs 2026 og spurði um viðhorf til þjónustu sveitarfélaga. Hér getur þú kynnt þér niðurstöðurnar.
Þjónustukönnun Gallup - niðurstöður Garðabæjar 2025
Betri Garðabær
Betri Garðabær er samráðsverkefni íbúa og stjórnsýslu um forgangsröðun og úthlutun fjármagns til smærri framkvæmda í nærumhverfi íbúa í Garðabæ. Verkefnið byggir á því að virkja almenning til þátttöku í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku.
Betri Garðabær í heild er í fjórum fösum:
- Hugmyndasöfnun
- Umræða um hugmyndir og úrvinnsla
- Rafræn kosning
- Framkvæmd verkefna
Samráðsverkefni Betri Garðabæjar eru sett á laggirnar með reglulegu millibili og þá kynnt vandlega til íbúa.