Beint í efni

Nið­ur­stöð­ur íbúa­þings um mál­efni eldra fólks kynntar

Fréttir
20.05.2026

Fjallað var um niðurstöður íbúaþings um málefni eldra fólks í Garðabæ á tveimur kynningarfundum sem haldnir voru í Jónshúsi og Lambamýri.

Íbúaþing um málefni eldra fólks í Garðabæ var haldið miðvikudaginn 11. mars í Sjálandi. Skráning á þingið gekk vel og leiddi til góðrar vinnu.

Á íbúaþinginu gafst eldra fólki í Garðabæ tækifæri til að taka virkan þátt í að móta framtíðarsýn og þróun í þeim málefnum sem varða eldra fólk í bænum. Fjögur þemu voru í forgrunni: búseta og umhverfi, heilsa og vellíðan, stuðningur og þjónusta og félagsleg virkni og þátttaka.

Fyrr í maímánuði voru niðurstöður vinnunnar kynntar fyrir áhugasömum bæði í Jónshúsi og í Lambamýri. Kynningin var í höndum þeirra Hafdísar Huldar hjá RATA og Láru Kristínar hjá Co-Create, en þær sáu um verkefnastýringu og framkvæmd þingsins í mars.

Meðfylgjandi eru þær glærur sem sýndar voru á kynningunum. Þar má finna samantekt um íbúaþingið, niðurstöðurnar og tillögur að næstu skrefum.

Kynning um niðurstöður íbúaþings eldra fólks 2026