Beint í efni

Opið sam­tal við íbúa

Fréttir
04.11.2026

Garðabær efndi til þriggja íbúafunda í október undir yfirskriftinni „Hvað er að frétta í Garðabæ?“.

Fundirnir voru vettvangur til að kynna verkefni bæjarins og gefa íbúum tækifæri til að spyrja spurninga, koma ábendingum á framfæri og ræða málefni nærumhverfisins við Almar Guðmundsson bæjarstjóra og sviðsstjóra bæjarins.

Fundirnir fóru fram í Álftanesskóla, Urriðaholtsskóla og Miðgarði. Allir fundirnir voru opnir íbúum, óháð búsetu í bænum.

Á fundunum var meðal annars farið yfir skóla- og leikskólamál, þjónustu við eldra fólk og endurbætur og uppbyggingu í bænum. Þá voru kynnt helstu verkefni í skipulags- og samgöngumálum, meðal annars uppbygging í Hnoðraholti og Vetrarmýri og framtíðarþróun Vífilsstaða. Áherslur fundanna tóku jafnframt mið af hverju hverfi fyrir sig. Á Álftanesi var meðal annars fjallað um fráveituframkvæmdir og skipulag við skóla- og íþróttasvæði hverfisins, í Urriðaholti um umferðaröryggi og frágang hverfisins en í Miðgarði um framtíð Garðatorgs og framkvæmdir við Ásgarð svo dæmi séu tekin.

Upptökur af öllum þremur fundunum eru aðgengilegar á vef Garðabæjar.