Opnað fyrir umsóknir um matjurtakassa 21. maí

Garðbæingum gefst kostur á að leigja matjurtakassa á fjórum stöðum í sumar. Opnað verður fyrir umsóknir fimmtudaginn 21. maí klukkan 08:30.
Matjurtakassarnir eru á staðsettir í Hæðahverfi, á Álftanesi og á tveimur stöðum í Urriðaholti, fyrir ofan Kauptún og fyrir neðan Dýjagötu.
Kössum fjölgað á milli ára
Á undanförnum árum hefur orðið sífellt vinsælla að leigja matjurtakassa og til að mæta þörfinni hefur nú verið bætt við kössum á nokkrum stöðum milli ára. Matjurtakassarnir sem eru í boði eru 2m x 4m eða 8m2 að stærð og eru merktir með númerum.
Leigutími er frá miðjum maí - 15. október og er leiguverðið 5.500 krónur.
- Í Hæðahverfi eru 41 matjurtakassar til útleigu (20 kössum bætt við frá því í fyrra). ATH af þessum eru 10 kassar sem eru eingöngu í leigu til 15. september.
- Á Álftanesi eru 10 matjurtakassar til útleigu
- Í Urriðaholti, neðan við Dýjagötu, eru 47 matjurtakassar til útleigu (19 kössum bætt við frá því í fyrra). ATH af þessum eru 10 kassar sem eru eingöngu í leigu til 15. september.
- Í Urriðaholti, fyrir ofan Kauptún, eru 10 matjurtakassar til útleigu
Matjurtakassar í vetrarleigu næsta haust
Í haust verður í fyrsta sinn boðið upp á að taka matjurtakassa í langtímaleigu, þ.e. til leigu í heilt ár, frá 20. september 2026 til og með 15. september 2027. Langtímaleigan er ætluð þeim sem hyggjast rækta matjurtir sem þurfa að vera í jörðu í lengri tíma, s.s. hvítlauk. Langtímaleigan er eins og áður sagði til eins árs og er í tilraunaskyni og eingöngu ætluð fyrir þá sem ætla að nýta þá yfir veturinn sem og sumarið eftir. Nánari upplýsingar um útleigu á kössunum í vetrarleigu verða kynntar í lok ágúst á vef Garðabæjar.