Beint í efni

Samn­ing­ur um frí­stundakst­ur

Fréttir
31.08.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Í ágúst var skrifað var undir samstarfssamning við Hópferðamiðstöðina um frístundaakstur i Garðabæ til ársins 2024.

Í ágúst var skrifað var undir samstarfssamning við Hópferðamiðstöðina um frístundaakstur i Garðabæ til ársins 2024. Samið var við Hópferðamiðstöðina um aksturinn að loknu útboði á frístundakstrinum í vor.

Frístundabíllinn í Garðabæ hefur það hlutverk að keyra börn frá frístundaheimilum grunnskóla í íþrótta- og tómstundastarf. Frístundabíllinn ekur þrjár leiðir á starfstíma skólanna alla virka daga kl. 14.15 - 17:00 með hléi í páskafríinu á vorönn. Einnig ekur frístundabíllinn í vetrarfríi skóla í febrúar sem og á starfsdögum skóla í Garðabæ.

Hér má lesa nánar um skráningu, gjaldskrá, leiðakerfi og tímatöflu frístundabilsins þessa haustönn.