Beint í efni

Sam­starfs­samn­ing­ur við Hesta­manna­fé­lag­ið Sprett

Fréttir
29.07.2026
Hestamannafélagið Sprettur - undirritun samstarfssamnings

Garðabær og Hestamannafélagið Sprettur hafa gert með sér samstarfssamning til ársloka 2028 um að efla barna- og unglingastarf í hestaíþróttum í Garðabæ.

Með samningnum er lagður grunnur að reglulegu barna- og unglingastarfi og námskeiðahaldi á vegum félagsins á félagssvæði Spretts. Hestamannafélagið Sprettur ber ábyrgð á því að félagið uppfylli skilyrði reglna til að teljast fyrirmyndarfélag ÍSÍ (Íþróttasamband Íslands) og starfi samkvæmt markmiðum sem um slík félög gilda.

Í samningnum er tilgreint að félagið skuli sérstaklega huga að því að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks. Einnig skal félagið setja upp áætlanir varðandi eineltismál og vera í samvinnu við Garðabæ um fræðslu og viðbrögð við slíkum málum í samræmi við m.a. lýðheilsu- og forvarnastefnu og samskiptasáttmála bæjarins. Allar deildir félagsins eiga einnig að innleiða og starfa samkvæmt leiðbeiningum og verklagsreglum ÍSÍS um kynferðislegt áreiti í íþróttum.

Hestamannafélagið Sprettur var stofnað árið 2012 og samanstendur félagið af hestamannafélaginu Gusti, Kópavogi og Hestamannafélaginu Andvara, Garðabæ. Sameinuð mynda þessi félög nú öfluga heild í Hestamannafélaginu Spretti. Sprettur er með starfsemi sína á Kjóavöllum og er eitt stærsta hestamannafélag landsins með á annað þúsund félagsmenn. Sjá nánari upplýsingar um félagið hér á vef þess.

Bygging félagshesthúss og skólastofu

Vorið 2026 undirrituðu Garðabær, Kópavogur og Sprettur viljayfirlýsingu um byggingu félagshesthúss og skólastofu. Félagshesthúsið mun rúma 40 hesta og þar verður aðstaða fyrir fatlaða einstaklinga að sækja sér reiðkennslu. Með uppbyggingu kennslu- og félagshesthúss verður til vettvangur sem m.a. getur boðið upp á þjónustu fyrir breiðari hóp með áherslu á félagslegan stuðning og sjúkraþjálfun með aðstoð hesta. Einnig er hugmynd um að grunnskólanemendum í sveitarfélögunum verði gert kleift að sækja reiðkennslu sem hluta af vali í grunnskóla á skólatíma.

Sjá nánar í frétt hér frá 30. apríl 2026.