Beint í efni

Síma­ráð­gjöf um stuðn­ings- og öldr­un­ar­þjón­ustu

Fréttir
22.05.2026

Nú er hægt að bóka tíma í símaráðgjöf til að fá upplýsingar um þá stuðnings- og öldrunarþjónustu sem Garðabær býður upp á.

Hægt er að bóka tíma á þessum hlekk: Símatími ráðgjafa. Viðkomandi velur tiltekinn dag og lausan tíma og færir inn nafn og símanúmer og ráðgjafi hefur þá samband. Einnig er hægt að senda erindi á heimathjonusta@gardabaer.is.

Um stuðningsþjónustuna

Stuðningsþjónusta er fyrir fólk sem þarf vegna aðstæðna sinna á stuðningi að halda við athafnir daglegs lífs. Stuðningsþjónustan styður meðal annars við heimilishald og persónulega umhirðu, auk þess að bjóða upp á heimsendingu á mat í hádeginu. Markmiðið er að styðja við fólk og efla getu þess til að búa á eigin heimili.