Beint í efni

Snjallar grennd­ar­stöðvar í Garða­bæ ​

Fréttir
06.03.2024

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Settar hafa verið upp nýjar grenndarstöðvar þar sem gámarnir verða útbúnir snjallskynjurum sem tryggja tímanlega losun og eiga að fyrirbyggja fulla gáma.

Litlar grenndarstöðvar í Garðabæ munu taka á móti gleri, málmumbúðum og skilagjaldskyldum flöskum og dósum.

  • Holtsvegur 49
  • Sjálandsskóli
  • Álftanes - Suðurnes við golfvöll​

Stórar grenndarstöðvar munu taka á móti gleri, málmumbúðum og skilagjaldsskyldum flöskum og dósum, auk plastumbúða og pappír og pappa.

  • Skólabraut 5
  • Ásgarður
  • Holtsvegur 21
  • Álftanes - Norðurnes við spennistöð

Textíl verður auk þess safnað á öllum grenndarstöðvum á komandi misserum. Núna er textílsöfnun á forræði Rauða krossins og ólík eftir grenndarstöðvum.

​Nánari upplýsingar um hvaða grenndarstöð er næst þér má sjá á www.sorpa.is

Ef þú vilt koma á framfæri ábendingu varðandi grenndarstöðina þína hafðu þá samband við okkur í gegnum ábendingarvef Garðabæjar!