Spennandi úrval sumarnámskeiða í Garðabæ

Fjölbreytt sumarnámskeið eru í boði fyrir börn í Garðabæ.
Á vef Garðabæjar má nálgast upplýsingar um fjölbreytt sumarnámskeið sem eru í boði fyrir börn í Garðabæ.
Hérna má finna helstu upplýsingar um þau sumarnámskeið sem eru í boði fyrir börn í Garðabæ 2026 og hlekkir yfir á vefsíður þeirra félagasamtaka sem halda námskeiðin.
Athugið að listinn er ekki tæmandi, en hér er að finna öll þau námskeið sem Garðabær hefur fengið upplýsingar um.
Það er af nógu að taka en á listanum eru námskeið í hestamennsku, myndlist, skátastarfi, leiklist, skák, siglingu og golfi svo nokkur dæmi séu tekin.
Sumarnámskeið í Garðabæ
Allt á einum stað á frístund.is
Við bendum einnig á nýjan þjónustuvef sem hefur verið settur á laggirnar, frístund.is.
Um samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er að ræða. Vefurinn var upphaflega þróaður af Reykjavíkurborg, sem heldur utan um rekstur hans, í samstarfi við Kópavogsbæ, Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ og Mosfellsbæ.
Markmiðið með frístund.is er að veita góða yfirsýn og auðvelda notendum hans að finna upplýsingar um íþróttir, námskeið og annað skipulagt frístundastarf fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Á vefnum má sjá allt framboð frístundastarfs á einum stað, flokkað eftir aldri og staðsetningu, með einfaldri leit og skýrum upplýsingum.