Þjóðaratkvæðagreiðsla - kjörsókn í Garðabæ
Fréttir
29.08.2026

Hér verða settar inn tölur yfir daginn um kjörsókn í Garðabæ vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.
Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB (Evrópusambandið), hófst í morgun laugardaginn 29. ágúst 2026 kl. 09:00 og stendur til kl. 22:00 í kvöld. Kjörstaðir í Garðabæ eru í íþróttamiðstöðinni Mýrinni við Skólabraut og Álftanesskóla við Breiðumýri.
Á kjörskrá í Garðabæ eru 15.694.
Kjörsókn - nýjustu tölur
Birtar verða tölur klukkan rúmlega 12:00, 16:00, 20:00 og loka kjörsóknartölur klukkan rúmlega 22:00.
- Klukkan 12:00 höfðu 1.1957 kjósendur greitt atkvæði á kjörstað. Kjörsókn var þá 12,5%. Alls hafa borist um 4700 utankjörfundaratkvæði eða um 30% af kjörskrá.
Sjá einnig frétt hér um þjóðaratkvæðagreiðsluna.