Beint í efni

Tíma­bund­in lok­un á að­rein frá Arn­ar­nes­vegi að Hafn­ar­fjarð­ar­vegi

Tilkynningar
04.08.2026

Í sumar hefur verið unnið að lagningu á fráveitu- og neysluvatnslögnum þvert undir Hafnarfjarðarveg. Í 2. áfanga verður aðrein frá Arnarnesvegi niður að Hafnarfjarðarvegi til norðurs lokuð, hjáleið verður um Fífuhvammsveg.

Í sumar hefur verið unnið að lagningu á fráveitu- og neysluvatnslögnum þvert undir Hafnarfjarðarveg við Súlunes vegna nýs hverfis sem er að fara í uppbyggingu í Arnarlandi. Framkvæmdin verður unnin í áföngum og umferð verður haldið opinni allan tímann um Hafnarfjarðarveg. Framkvæmdartími er áætlaður frá 14. júlí til 18. ágúst 2026.

Annar áfangi - hjáleið frá Arnarnesvegi um Fífuhvammsveg að Hafnarfjarðarvegi

Annar áfangi framkvæmdarinnar í sumar er hafinn og eftir hádegi í dag 4. ágúst verður aðrein frá Arnarnesvegi niður að Hafnarfjarðarvegi til norðurs lokuð, hjáleið verður um Fífuhvammsveg. Sjá hjáleið merkta með appelsínugulri brotalínu á meðfylgjandi mynd með frétt.

Sjá einnig frétt frá 9. júlí sl. um framkvæmdirnar og nánari upplýsingar um hvern áfanga hér.

Vegfarendur eru beðnir um að fylgja öllum vegamerkingum og gæta varkárni á framkvæmdasvæðinu. Smellið á stækkunargler á myndinni hér fyrir neðan til að stækka hana.

2. áfangi: Aðrein frá Arnarnesvegi niður að Hafnarfjarðarvegi til norðurs lokuð (merkt með rauðu), hjáleið um Fífuhvammsveg (merkt með appelsínugulri brotalínu).
Tímabundin lokun á aðrein frá Arnarnesvegi að Hafnarfjarðarvegi - Garðabær