Upplýsingafundur með foreldrum í Urriðaholtsskóla

Mánudaginn 13. apríl var haldinn upplýsingafundur vegna umferðarslyss sem varð 17. mars síðastliðinn. Upplýsingafundurinn var haldinn í Urriðaholtsskóla og fengu foreldrar og forráðafólk þeirra barna sem voru í rútunni þegar slysið átti sér stað boð á fundinn.
Fulltrúar frá Urriðaholtsskóla, fræðslu- og frístundasviði Garðabæjar, hópferðafyrirtækinu Trex og lögreglunni fóru yfir málið á fundinum og svöruðu spurningum viðstaddra.
Farið var yfir málsatvik, verkferla skólans sem farið var eftir og næstu skref. Einnig tímalínu málsins, bæði varðandi umferðaróhappið sjálft, það sem hefur verið gert frá 17. mars til dagsins í dag. Þar kom meðal annars fram að Trex hefur nú þegar breytt verklagi sínu á þann hátt að framvegis mun bílstjóri í skóla- og frístundaakstri alltaf kalla lögreglu til þegar árekstur verður, óháð því hvort atvikið sé metið sem minniháttar eða ekki.
Á fundinum var einnig farið yfir það sem betur hefði mátt fara í kjölfar slyssins af hálfu Garðabæjar, t.a.m. varðandi upplýsingagjöf til foreldra og forráðafólks. Þá fór fulltrúi lögreglu yfir sína verkferla og staðfesti að engar athugasemdir hefðu verið gerðar við öryggisbúnað í rútunni en hann var yfirfarinn eftir slysið.
Að lokum var farið yfir næstu skref og kom meðal annars fram að frá og með skólaárinu 2026/2027 mun sundkennsla fara fram í íþróttamannvirkjum við Urriðaholtsskóla.
Garðabær, fræðslu- og frístundasvið og starfsmenn Urriðaholtsskóla vilja þakka foreldrum og forráðafólki fyrir góðan fund.
Sjá einnig: Upplýsingar um umferðaróhapp