Upplýsingar um umferðaróhapp – samantekt frá foreldrafundi 13. apríl

Meðfylgjandi er samantekt um upplýsingafund sem haldinn var vegna umferðarslyss sem varð 17. mars síðastliðinn.
Mánudaginn 13. apríl var haldinn upplýsingafundur vegna umferðarslyss sem varð 17. mars síðastliðinn. Upplýsingafundurinn var haldinn í Urriðaholtsskóla og fengu foreldrar og forráðafólk þeirra barna sem voru í rútunni þegar slysið átti sér stað boð á fundinn.
Fulltrúar frá Urriðaholtsskóla, fræðslu- og frístundasviði Garðabæjar, hópferðafyrirtækinu Trex og lögreglunni fóru yfir málið á fundinum og svöruðu spurningum viðstaddra.
Meðfylgjandi er samantekt af fundinum.
Þorgerður Anna Arnardóttir, skólastjóri Urriðaholtsskóla, opnaði fundinn og bauð viðstödd velkomin.
Linda Udengård, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs, fór yfir glærur um málsatvik, viðbrögð skólans við atvikinu og í kjölfar þess, viðbrögð og verklag Trex og næstu skref. Einnig var farið yfir þau atriði sem vel var staðið að og það sem hefði mátt betur fara.

Þorgerður Anna tók til máls við glæru þar sem fjallað var um atvikið og bætti við að nemendur hefðu haft val um að fara ofan í laug eða ekki þegar í Álftaneslaug var komið. Ekki var um hefðbundinn sundtíma að ræða.
Spurning úr foreldrahóp: Hvenær var haft samband við vaktstjóra Trex? Svar: Á milli klukkan 10:44 og 10:59.

Viðbót frá Lindu við glæru um viðbrögð eftir 17. mars: Linda fjallaði lauslega um þau samtöl við foreldra sem urðu til þess að ekki var talin þörf á upplýsingafundi. Um mistök af hálfu Garðabæjar var að ræða og niðurstaðan sú að vænlegast hefði verið að halda foreldrafund strax.

Einar Þór Guðjónsson, framkvæmdastjóri Trex, fór yfir það verklag Trex sem var í gildi þann 17. mars og einnig breytt verklag. Hann greindi frá því að bílstjóri hafi metið sem svo að enginn hefði slasast í árekstrinum.

Einar fjallaði um það viðbragð sem fer af stað þegar árekstur verður. Hluti af því sé að koma farþegum í öruggt skjól og svo aftengja rafmagn í bifreiðinni. Þá lá beinast við að senda nemendur í Álftaneslaug þar sem nemendur eru öruggari þar en við umferðargötu.
Ábending úr foreldrahóp: Það sé mikilvægt að kanna ástand nemenda með því að eiga í samtali og spyrja alla í hópnum um líðan og ástand. Sú ályktun dregin á fundi að nemendur hafi ef til vill verið í sjokki eftir árekstur og að einhvers misskilnings hafi gætt vegna þess, þar sem bílstjóri taldi sig hafa staðfest hjá öllum farþegum að enginn hefði meiðst.

Linda fjallaði um þau atriði sem hefði betur mátt fara. Til að mynda var rætt um ekki hefði átt að bíða með að boða foreldrafund. Edda Björg Sigðurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi, tók til máls og benti á að það hafi verið metið sem svo að fyrst þyrfti að taka saman allar upplýsingar og fá skýra mynd af atvikinu og kalla foreldrahópinn saman í kjölfarið. Framvegis verða atvik sem þessi afgreidd með fundi eins fljótt og auðið er og framhaldsfundi eftir að nánari upplýsingar liggja fyrir, ef svo ber undir.
Einnig var farið yfir það sem vel var gert. Að lokum var fjallað um þá vinnu sem hefur nú þegar átt sér stað og næstu skref.


Þorgerður fjallaði lauslega um breytt fyrirkomulag á skólasundi en á skólaárinu 2026/2027 mun sundkennsla fara fram í nýju íþróttamannvirki í Urriðaholtsskóla.
Opið fyrir spurningar og umræður
- Spurt út í hvort samantekt frá fundi verði gerð aðgengileg. Því svarað játandi.
- Vangaveltur úr foreldrahóp: Hvort beltin í rútunni hafi verið örugg. Niðurstaða rannsóknar lögreglu sé sú að öryggisbelti séu þriggja punkta og uppfylli öryggiskröfur.
Ábending Þorgerðar Önnu: Að brýna þurfi fyrir börnum að beltin þurfi að vera spennt á meðan rúta er í akstri og þurfi að liggja rétt yfir líkamann. Einar tekur undir og segir bílstjóra reglulega þurfa að minna á þessi atriði.
- Spurning úr sal, beint til Trex: Er Trex með ISO 45001 vottun? Svarið er já.
Einar rennir í framhaldi yfir þann misskilning sem gætti á milli bílstjóra og vaktstjóra Trex. Þegar vaktstjóri spyr bílstjóra hvort búið sé að tilkynna skólanum um atvikið svarar hann játandi, þar sem hann hafði átt í samtali við sundkennara og taldi að sundkennari myndi koma upplýsingum áleiðis til skólaskrifstofu. Þorgerður Anna bætir við að búið sé að skerpa á verkferlum skólans til að koma í veg fyrir misskilning af þessu tagi.
- Viðbót frá fulltrúum lögreglu sem sátu fundinn: Áréttað að rútan hafi verið skoðuð, að engar athugasemdir hafi verið gerðar og að allar öryggiskröfur hafi verið uppfylltar.
Í rannsókn lögreglu kemur í ljós að í tilkynningu sem barst frá ökumanni fólksbílsins kemur hvergi fram að um skólarútu var að ræða og ekki er minnst á ólögráða farþega. Ef það hefði komið fram hefði afgreiðsla málsins verið með öðrum hætti. Lögregla fékk vitneskju að um rútu með skólabörnum hefði verið að ræða síðar um daginn, eftir samtal við Urriðaholtsskóla og þá hefst rannsóknarferli.
• Lögregla tekur framburð málsaðila, aflar upplýsinga um alla sem voru í rútunni, skoðar báðar bifreiðar og hefur samband við foreldra þeirra nemenda sem kenndu sér meins.
Á fundi kemur fram að Trex hafi núna beðið um lögregluskýrslu og að það sé í umsögn hjá lögreglu. Málið er enn þá opið og í rannsókn hjá lögreglu. Lögregla kallar eftir læknisvottorðum þeirra barna sem fóru í frekari skoðun.. Linda bætir við að Garðabær geti haft milligöngu um að gæta réttar þeirra gagnvart tryggingarfélagi tjónvalds, þ.e. ökumanni fólksbíls.
- Spurning úr sal: Er hægt að fá afrit af verklagi Trex, fyrir og eftir. Því svarað játandi. (Sjá glærur með verklagi fyrir ofan)
Linda bætir við að lokum að áfram sé hægt að koma með ábendingar og spurningar varðandi málið og þakkaði fyrir góðan fund.