Fréttir og tilkynningar
Fréttir27.09.2023Loftgæðamælirinn byrjaður að mæla
Í loftgæðastöðinni eru fullkomnir símælandi ryk- og brennisteinsmælar auk veðurstöðvar og komi til frekari eldgosa á Reykjanesi verður mælirinn einnig vel staðsettur til að vakta vestasta hluta höfuðborgarsvæðisins, Garðaholt og Álftanes.
Fréttir27.09.2023Fleiri dagdvalarrými á Ísafold
Ísafold er ein af mikilvægustu stoðþjónustum fyrir eldra fólk í Garðabæ.
Fréttir26.09.2023Rökkvan í annað sinn 29. og 30. september
Hátíðin samanstendur því af listmarkaði á göngugötunni, myndlistarsýningu í Gróskusal, tónlistardagskrá á Rökkvukránni og tónleikum á stóra sviðinu.
Fréttir25.09.2023Fánadagur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna
Tilgangur fánadagsins er að minna á mikilvægi heimsmarkmiðanna og að fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, skólar og sveitarfélög um allan heim, sýni skuldbindingu sína við heimsmarkmiðin og aðgerðirnar sem þau krefjast. UN Global Compact á Íslandi, í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi með stuðningi forsætisráðuneytins og utanríkisráðuneytisins, stendur fyrir fánadegi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í fyrsta sinn á Íslandi.
Fréttir22.09.2023Hreyfivika í Garðabæ - vertu með!
Hreyfivika í Garðabæ fer fram 23.-30. september í tilefni af Íþróttaviku Evrópu. #beactive - Vertu með!
Fréttir21.09.2023Skipulagstillögur um Arnarland eru í forkynningu
Frestur til að skila inn ábendingum vegna forkynningar á skipulagstillögum Arnarlands er framlengdur til mánudagsins 2. október 2023. Svæðið sem tillögurnar ná til afmarkast af Hafnarfjarðarvegi, Arnarnesvegi, Fífuhvammsvegi og bæjarmörkum við Kópavog.
Fréttir20.09.2023Enduropnun Minjagarðsins á Hofsstöðum
Nýuppfærð sýning sem margmiðlunarfyrirtækið Gagarín hannaði hefur nú verið opnuð í Minjagarðinum á Hofsstöðum. Margmiðlunarsjónaukar gefa gestum færi á að skyggnast inn í lífið á landnámsöld á nýstárlegan hátt
Fréttir19.09.2023Ný vegrið á brýr yfir Reykjanesbraut
Vegagerðin setur upp vegrið á brúm yfir Reykjanesbraut, við Kauptún og Vífilsstaðaveg til að auka öryggi gangandi vegfarenda.
Fréttir19.09.2023Samgönguvika 16.-22. september
Evrópsk samgönguvika stendur yfir dagana 16.-22. september 2022.
Fréttir18.09.2023Þjónustusamningur við Ás styrktarfélag
Garðabær og Ás styrktarfélag hafa gert þjónustusamning um rekstur á sértækri búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk við Brekkuás 2 í Garðabæ. Um er að ræða nýjan búsetukjarna sem er 588m2 að stærð með 7 einstaklingsíbúðum og starfsmannarými.
Fréttir14.09.2023Símkerfi Garðabæjar komið í lag
Vegna netbilunar hjá Vodafone var símkerfi Garðabæjar hjá þjónustuveri Garðabæjar og stofnunum bæjarins óvirkt um tíma í morgun en ætti að vera komið í lag núna.
Fréttir14.09.2023Útilegutæki og ferðavagnar
Eigendur ferðavagna og hvers kyns útilegutækja eru beðnir um að fjarlægja þá af bílastæðum skóla í Garðabæ þar sem skólastarf er hafið að fullu.
Fréttir11.09.2023Skipulagsgátt – Nýjung við skipulagsgerð, umhverfismat og framkvæmdar-leyfisveitingar
Við hvetjum íbúa til að kynna sér málið
Fréttir07.09.2023Góður íbúafundur í Urriðaholti
Miklar umræður sköpuðust um hús sem hafa verið lengi í byggingu í hverfinu, en einnig var farið yfir nýtt sorphirðukerfi, leiksvæðin í hverfinu, snjómokstur, umferð um hverfið og opnun út á Flóttamannaveg.
Fréttir07.09.2023Ekki missa af Rökkvunni
Tónlistin er í forgrunni á Rökkvunni en auk þess fer fram myndlistarsýning og markaður með hönnun og list verður starfræktur.