Fréttir og tilkynningar
Fréttir14.06.2022Skólagarðar Garðabæjar
Skólagarðarnir í Silfurtúni eru fyrir börn á aldrinum 6 - 13 ára og enn eru nokkrir lausir garðar í sumar.
Fréttir14.06.2022Greiðslur til forráðamanna leikskólabarna á biðlista teknar upp í Garðabæ
Bæjarráð Garðabæjar hefur samþykkt greiðslur til forráðamanna barna 12 mánaða og eldri sem eru á biðlista eftir leikskólavist í Garðabæ.
Fréttir14.06.2022Skemmtilegur skóli og hlýlegur skólaandi
Ungbarnaleikskólinn Mánahvoll hóf starfsemi sína í ágúst 2021. Um 81 barn eru nú innritað í Mánahvol en gert er ráð fyrir að leikskólinn geti verið með pláss fyrir allt að 112 börn þegar allar átta deildirnar verða komnar til starfa.
Fréttir10.06.2022Ný bæjarstjórn tekin til starfa
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar Garðabæjar var haldinn 2. júní sl. Á þessum fyrsta fundi var Sigríður Hulda Jónsdóttir (D) kosin forseti bæjarstjórnar, Guðfinnur Sigurvinsson (D) var kosinn fyrsti varaforseti bæjarstjórnar og Ingvar Arnarsson (G) var kosinn annar varaforseti bæjarstjórnar.
Fréttir10.06.2022Hávaxnar undraverur heimsóttu Garðabæ
Listahátíð heimsótti Garðabæ með atriðinu ,,Rauðglóandi götuleikhús" laugardaginn 4. júní sl. Um var að ræða hluta af opnunaratriði Listahátíðar í Reykjavík
Fréttir10.06.2022Tekið á móti sumrinu í Garðabæ
Nú er sumarið komið og sumarstarfsfólkið er að týnast inn í störf hjá Garðabæ.
Fréttir07.06.2022Samningur um rekstur nýs leikskóla í Kauptúni
Garðabær og Skólar ehf hafa gert með sér samning um rekstur leikskólans Urriðabóls við Kauptún í Garðabæ.
Fréttir03.06.2022Almar Guðmundsson tekur við sem bæjarstjóri
Á fundi nýrrar bæjarstjórnar Garðabæjar í gær, 2. júní var samþykkt að ganga til samninga við Almar Guðmundsson um starf bæjarstjóra í Garðabæ kjörtímabilið 2022-2026.
Fréttir03.06.2022Nýr skólastjóri Álftanesskóla
Anna María Skúladóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra Álftanesskóla frá og með 1. ágúst nk.
Fréttir02.06.2022Bæjarstjóri í 17 ár
Gunnar Einarsson bæjarstjóri lét af störfum í lok maí eftir síðasta kjörtímabil eftir að hafa gegnt starfi bæjarstjóra Garðabæjar síðustu 17 ár eða frá árinu 2005.
Fréttir02.06.2022Kröfu um ógildingu kosninga hafnað
Niðurstaða úrskurðarnefndar kosningamála 2. júní 2022 er að kjörgögn við sveitarstjórnarkosningar í Garðabæ 14. maí sl. hafi verið í samræmi við lög.
Fréttir31.05.2022Listahátíð í Garðabæ -rauðglóandi götuleikhús
Hávaxnar undraverur og glaðværir trommuleikarar skálma um götur og torg og slá tóninn fyrir Listahátíð í Reykjavík 2022. Götuleikhúsið mætir í Garðabæ laugardaginn 4. júní kl. 16. Atriðið hefst við Litlatún og endar við Garðatorg.
Fréttir27.05.2022Birgitta Haukdal bæjarlistamaður Garðabæjar 2022
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2022 er Birgitta Haukdal söngkona og barnabókahöfundur. Tilkynnt var um valið við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi þann 25. maí. Við sama tilefni var Birgittu og félögum hennar í Írafári afhent tvöföld platínuplata fyrir metsöluplötu sína „Allt sem ég sé“ og tóku þau lagið að þessu tilefni.
Fréttir23.05.2022Ný menntastefna Garðabæjar
Menntastefna Garðabæjar 2022-2030 hefur nú litið dagsins ljós. Eldri stefna sveitarfélagsins var endurskoðuð og var það gert í víðtæku samráði við börn í leik-, grunn- og tónlistarskólum, starfsfólk, kjörna fulltrúa, forráðamenn og bæjarbúa.
Fréttir23.05.2022M-listi hefur kært framkvæmd kosninganna
M-listi Miðflokksins hefur kært framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna í Garðabæ til úrskurðarnefndar kosningamála. Í kærunni er vísað til þess að kjörseðill hafi verið þannig gerður að ekki hafi gætt jafnræðis með framboðum.