Fréttir og tilkynningar
Fréttir24.04.2023Innleiðing á nýju flokkunarkerfi hefst 22. maí
Innleiðing á nýju flokkunarkerfi mun hefjast 22. maí 2023 í Garðabæ og taka um átta vikur. Með breyttu fyrirkomulagi verður sorp flokkað í plast, pappír, lífrænt og almennan úrgang.
Fréttir24.04.2023Veiðitímabilið er hafið í Vífilsstaðavatni
Veiðitímabilið í Vífilsstaðavatni er hafið og stendur yfir frá 1. apríl til 15. september.
Fréttir21.04.2023Rampur númer 450 í Garðabæ
Rakarastofa Garðabæjar fékk þann heiður að fá ramp númer 450, þeir Sævar Jóhann Sigursteinsson og Hlynur Guðmundsson, hársnyrtar, reka stofuna og buðu þeir Hákoni Atla Bjarkasyni íbúa á Garðatorgi að vígja rampinn formlega á föstudag.
Fréttir19.04.2023Fjör á Barnamenningarhátíð- troðfull dagskrá á laugardag!
750 börn njóta dagskrár dagana 17. – 21. apríl í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, Minjagarðinum á Hofsstöðum og Aftur til Hofsstaða og á Garðatorgi.
Fréttir18.04.2023Villa við rukkun fasteignagjalda
Við rukkun fasteignagjalda Garðabæjar komu í ljós villur þar sem ekki var hægt að rukka fasteignagjöld í gegnum kreditkort hjá nokkrum íbúum.
Fréttir14.04.2023Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ
Sumardagurinn fyrsti verður haldinn með pompi og prakt í Garðabæ 20. apríl 2023.
Fréttir13.04.2023Hreinsunarátak og vorhreinsun lóða
Árlegt hreinsunarátak Garðabæjar verður að þessu sinni dagana 24. apríl – 8. maí nk. en þá eru nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar hvattir til að taka þátt. Vorhreinsun lóða fer svo fram 8-19. maí.
Fréttir13.04.2023Jónshús lokað í 6-8 vikur
Talsverðar skemmdir urðu á gólfefni í Jónshúsi yfir páskana vegna leka frá lögnum. Ráðast þurfti strax í framkvæmdir og verður Jónshúsi því lokað í 6-8 vikur.
Fréttir12.04.2023Nemendur Flataskóla með söngleikinn Grease
Nemendur á miðstigi Flataskóla í Garðabæ sýndu söngleikinn Grease í marsmánuði.
Fréttir11.04.2023Fræðslu- og upplýsingafundur vegna ágangs máva
Fræðslu- og upplýsingafundur vegna máva verður haldinn fyrir íbúa Garðabæjar miðvikudaginn 12. apríl kl. 17 í Sjálandsskóla.
Fréttir04.04.2023Höfuðborgarsvæðið markaðsett sem einn áfangastaður
Í gær, 3. apríl 2023 var Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð eftir tveggja ára undirbúning.
Fréttir04.04.2023Opnunartími sundlauganna um páskana
Sundlaugarnar í Ásgarði og á Álftanesi verða lokaðar föstudaginn langa og páskadag.
Fréttir04.04.2023Endurnýjun samnings við Skógræktarfélag Garðabæjar
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Barbara Stanzeit, gjaldkeri Skógræktarfélags Garðabæjar, skrifuðu undir endurnýjaðan samning milli bæjarins og skógræktarfélagsins á aðalfundi Skógræktarfélags Garðabæjar 20. mars síðastliðinn.
Fréttir03.04.2023Tónlistarnæring -Tónvöndur
Miðvikudaginn 5. apríl kl. 12:15 eru á dagskrá tónleikar í röðinni Tónlistarnæring í sal Tónlistarskóla Garðabæjar.
Fréttir31.03.2023Endurnýjung samnings við Stjörnuna
Það var líf og fjör í Miðgarði þegar Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar og Sigurður Guðmundsson, formaður Stjörnunnar undirrituðu nýjan samstarfssamnings bæjarins og ungmennafélagsins. Í samningnum er kveðið á um gagnkvæmar skyldur samningsaðila um útfærslu á íþróttastarfi í Garðabæ.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.